Á háum hesti Bergur Ebbi Benediktsson skrifar 19. júní 2014 07:00 Þegar ég keyri bíl þá þoli ég ekki hjólreiðafólk. Að sjá tvo hjólreiðamenn hjóla samsíða á 30 km hraða á akrein sem ég ætla mér að keyra á 50 km hraða fær blóð mitt til að sjóða. Ég þoli ekki að vera hindraður af hjólandi fólki. Ég hugsa ekki aðeins illa til þess heldur set ég saman eitraðar hugsanir um allt sem tengist hjólreiðum. Þegar ég keyri bíl hata ég hjólastíga, hjólabúðir, Gísla Martein, allt hollenskt, þröng föt, hverskonar keðjur, gjarðir og teina. Ef ég neyðist til að stansa við gangbraut til að hleypa hjólandi fólki yfir þá finnst mér ég eiga skilið fálkaorðuna fyrir miskunnsemi gagnvart þessum annars flokks borgurum. Í raun ættu þessir hjólavesalingar bara að þakka Guði (mér) fyrir miskunnsemi mína, enda er ég þeim æðri, bý yfir a.m.k. 163 hestöflum umfram þá (hógvært mont) og get keyrt til Akureyrar í einum rykk án þess að þurfa svo mikið sem að fá mér vatnssopa. Ég væri til í að sjá hjólreiðamann gera það. En þegar ég hjóla er þessu öfugt farið. Já. Ég hjóla líka. Þá þoli ég ekki ökumenn. Þegar ég finn fyrir ökumanni sem reynir að komast fram úr mér þá hlakkar í mér yfir heimsku hans og hans umhverfiseyðandi offituvaldandi lífsstíl. Ég horfi á borgina og sé ekkert nema frekju einkabílsins, skammsýni heimskra stjórnmálamanna á 20. öldinni sem skildu ekki samhengi manns og náttúru. Ég fyrirlít fólkið sem keyrir einsamalt í bílum sínum, með staðið blóð í æðum og fölar kinnar hlustandi á hugmyndasnauða dagskrárgerðarmenn lesa upp netfréttir í síðdegisþáttum útvarpsstöðva á meðan það spænir upp svifryk og spýr út gróðurhúsalofttegundum. Ég tel þá sem aka bílum ekki gjaldgenga sem homo sapiens heldur tilheyra útvötnuðu, forheimskuðu kyni sem gæti aldrei náð þeim djúpa þolinmóða skilningi á tilverunni sem ég sjálfur hef öðlast. Ég er kominn með símann hjá læknavaktinni og lofa að leita mér hjálpar áður en það verður of seint. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bergur Ebbi Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun