Það er leikur einn að búa sér til köku í könnu ef löngunin í sætindi nær yfirhöndinni.
Þessar uppskriftir miðast allar við eina köku og ætti hver sem er að geta hrært í svona köku á nokkrum mínútum. Ekki skemmir fyrir að þessar kökur eru líka einstaklega ljúffengar.

Oreo-kaka
¼ bolli hvítt súkkulaði
3 msk. mjólk
4 msk. hveiti
¼ tsk. lyftiduft
½ tsk. jurtaolía
2 Oreo-kökur
Blandið hvítu súkkulaði og mjólk saman í könnu sem þolir örbylgjuofn og hitið í um fjörutíu sekúndur. Hrærið vel þangað til súkkulaðið er bráðið. Bætið hveiti, lyftidufti og olíu saman við og hrærið. Myljið Oreo ofan í blönduna og hitið í örbylgjuofni í um eina mínútu. Leyfið kökunni að kólna í nokkrar mínútur áður en hún er borðuð.
Fengið hér.

Súkkulaði- og hnetusmjörskaka
3 msk. hveiti
2 msk. sykur
1½ msk. kakó
¼ tsk. lyftiduft
smá salt
3 msk. mjólk
1½ msk. jurtaolía
1 msk. hnetusmjör
Hrærið þurrefnum saman í könnu sem þolir örbylgjuofn. Bætið mjólk, olíu og hnetusmjöri við og hrærið vel. Hitið í örbylgjuofni í eina mínútu og tíu sekúndur. Berið strax fram.
Fengið hér.

Kaffikaka
3 msk. hveiti
2 msk. sykur
1 msk. kakó
¼ tsk. lyftiduft
¾ msk. jurta- eða kókosolía
1 msk. sterkt kaffi
2 msk. mjólk
¼ tsk. vanilludropar
Blandið þurrefnum vel saman í könnu sem þolir örbylgjuofn. Bætið olíu, kaffi og vanilludropum saman við og hrærið vel saman. Hitið í örbylgjuofni í 45 sekúndur og upp í mínútu. Skreytið með flórsykri og berið fram.
Fengið hér.

Haframjöls- og Nutella-kaka
3 msk. mjólk
1 msk. ólífuolía
1 msk. sykur
3 msk. hveiti
1½ msk. haframjöl
1 msk. fínt saxaðar pecan-hnetur
¼ tsk. lyftiduft
1/8 tsk. salt
¼ tsk. kanill
örlítið múskat ef vill
1 msk. Nutella
Blandið mjólk, olíu og sykri saman í könnu sem þolir örbylgjuofn. Bætið hveiti við og blandið. Bætið síðan haframjöli, pecan-hnetum, lyftidufti, salti, kanil og múskati saman við og hrærið. Setjið Nutella á toppinn og hitið í örbylgjuofni í þrjátíu sekúndur, síðan í fimmtán sekúndur í senn þangað til efsta lag kökunnar er orðið þurrt.
Fengið hér.