Mikið stuð í mönnum Gunnar Leó Pálsson skrifar 9. september 2014 13:30 mynd/daníel
Stuðmenn Tívolí Tónleikar Eldborg í Hörpu 6. september Ein skemmtilegasta og vinsælasta hljómsveit Íslandssögunnar, Stuðmenn lagði undir sig Hörpu um liðna helgi þegar sveitin kom fram á tvennum tónleikum í Eldborgarsalnum og á dansleik í Silfurbergi. Undirritaður fór á fyrri tónleika kvöldsins sem hófust klukkan 19.30 og var salurinn þétt setinn. Efni tónleikana var eins og titillinn gefur til kynna, Tívólí plata sveitarinnar sem kom út árið 1976. Platan er góð en mér finnst hún þó ekki vera besta plata Stuðmanna en lögin voru leikin af mikilli fagmennsku og greinilegt að mikið hefur verið lagt í æfingar og undirbúning. Umgjörðin var til fyrirmyndar og mátti um tíma halda að maður væri staddur í tívolíi. Benedikt Erlingsson leikstýrði tónleikunum og tókst vel til því tónleikarnir voru virkilega flott show og mikið að gerast á sviðinu. Stuðmenn voru þó yfirvegaðir í sinni spilamennsku og fannst mér um stund meðlimir sveitarinnar fullrólegir en ég skil þó vel að ekki hafi verið hægt að nýta alla sína krafta á fyrri tónleikunum, enda mikil spilamennska framundan. Á milli laga var yfirleitt hlegið dátt, þegar meðlimir sveitarinnar, þá helst Valgeir Guðjónsson, Jakob Frímann Magnússon og Egill Ólafsson létu út úr sér mörg gullkornin, skemmtilegar sögur og brandara. Þá átti bassaleikarinn Tómas Tómasson einnig góða framsögu. Fyrir þá sem fóru á tónleikana til þess að heyra þekktustu lög sveitarinnar hafa tónleikarnir líklega ekki vakið jafn mikla lukku en þeir sem þekkja Tívolí plötuna hafa líklega skemmt sér betur. Haustið 2012 hélt sveitin tónleika undir yfirskriftinni Með allt á hreinu þar sem sú plata var í forgrunni, nú hefur Tívolí platan verið flutt og má því vænta að Sumar á Sýrlandi platan sé næst á dagskrá.Niðurstaða: Fágaðir tónleikar Stuðmanna þar sem mikið var um að vera á sviðinu og minntu tónleikarnir um stund á leiksýningu. Stuðmenn voru rólegir og gerðu það sem þeir þurftu að gera til að skila sínu. Skemmtilegar sögur og brandarar á milli laga gerðu góða tónleika enn betri.
Gagnrýni Mest lesið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Crawford minnist sonarins Lífið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, í fjórum vinnum, meistaranám og flott starf Áskorun Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Lífið Stella í orlofi á stóra sviðið Menning Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Lífið Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Lífið samstarf Fleiri fréttir Berrössuð hjón og endurtekið efni Digger grefur sína eigin gröf Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Elskar uppþvottavélina meira en eiginkonuna Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Sjá meira