Jól

Í Betlehem

Í Betlehem er Barn oss fætt:

Því fagni gjörvöll Adamsætt.

Hallelúja

Það barn oss fæddi :/: fátæk mær

Hann er þó dýrðar Drottinn skær.

Hallelúja

Hann var í jötu lagður lágt,

en ríkir þó á himnum hátt.

Hallelúja

Hann vegsömuðu vitringar

hann tigna himins herskarar.

Hallelúja

Hann boðar frelsi' og frið á jörð

og blessun Drottins barnahjörð

Hallelúja

Vér undir tökum englasöng

og nú finst oss ei nóttin löng.

Hallelúja

Vér fögnum komu Frelsarans

vér erum systkin orðin hans.

Hallelúja

Hvert fátækt hreysi höll nú er

Því Guð er sjálfur gestur hér.

Hallelúja

Í myrkrum ljómar lífsins sól:

Þér, Guð sé lof fyrir gleðileg jól.

Hallelúja



Valdimar Briem/Danskt þjóðlag



×