„Ekki ætluð börnum – fékk SEX stjörnur hjá Extrablaðinu!“ segir á tveimur kápum, sem vekja án vafa nostalgíu hjá þeim sem muna enn eftir myndbandaleigunum og þessari úreltu en jafnframt sjarmerandi tækni.

„Þessar fyrstu spólur frá Regnboganum eru teknar beint af filmunum sem voru sýndar í bíóinu, þær eru oft slitnar og rispaðar og það vantar í þær hljóðið stundum, þannig að þú ert að sjá það sem var sýnt til að byrja með í kvikmyndahúsinu.“

Kjartan segist eiga nokkrar af spólunum sem voru á íslenska bannlistanum og eru þær sannkallaðir gullmolar úr kvikmyndasögunni.