Bílar

Volkswagen hyggur á verksmiðju í Nígeríu

Finnur Thorlacius skrifar
Þung bílaumferð í Nígeríu.
Þung bílaumferð í Nígeríu.
Mjög stutt gæti orðið í að Volkswagen hefji samsetningu á bílum sínum í Afríkuríkinu Nígeríu og það jafnvel strax á næsta ári. Yrði þetta fyrsta bílasamsetnignarverksmiðja Volkswagen í Afríku utan S-Afríku.

Volkswagen setur saman Polo bíl sinn í S-Afríku og einnig eru MAN vörubílar settir saman í tveimur verksmiðjum þarlendis, en Volkswagen á MAN. Með því að setja upp eigin verksmiðju í Nígeríu mun Volkwsagen sneiða hjá sköttum sem lagðir eru á innflutta bíla og verða því bílar Volkswagen enn samkeppnisfærari þar.

Nígería er fjölmennasta ríki Afríku með 170 milljónir íbúa og þar er stærsta hagkerfi álfunnar og vöxtur þess mjög vaxandi undanfarið. Volkswagen á einar 107 verksmiðjur um allan heim. 







×