Bílar

Fín bílasala í risjóttri tíð

Finnur Thorlacius skrifar
Margir lögðu leið sína að skoða nýjan Subaru Outback hjá BL um helgina.
Margir lögðu leið sína að skoða nýjan Subaru Outback hjá BL um helgina.
Heildarsala á nýjum fólksbílum, sendibílum og bílaleigubílum í janúar og febrúar var rúmum 27 prósentum meiri en á sama tímabili 2014 og þrátt fyrir risjótta tíð í nýliðnum febrúar hélst bílasala umboðanna í samræmi við væntingar. Sala bílaleigubíla virðist haldast nokkuð vel í hendur við aukningu markaðarinns og má leiða að því líkum að bílaleigurnar njóti mjög vaxandi fjölda ferðamanna yfir vetrarmánuðina.

Einstaklingar og fyrirtæki önnur en bílaleigur keyptu 506 bíla í febrúar, sem er um 28% aukning milli ára. Fólk virðist ekki hafa látið veðrið slá sig út af laginu enda hefur undanfarið verið mikið um frumsýningar á nýjum og spennandi bílum af ýmsum stærðum og gerðum. Sömu sögu er að segja af fyrirtækjum sem leita nú í auknum mæli en áður að upplýsingum um hagkvæma endurnýjun bílaflota sinna, m.a. með kaupum á rafbílum.

Áframhaldandi sterk markaðshlutdeild

Eins og taflan hér að neðan sýnir er BL. ehf. með mesta markaðshlutdeild einstakra bílaumboða á landinu það sem af er ári. Nýhafinn marsmánuður hefur farið vel af stað hjá fyrirtækinu enda talsvert um bílakynningar á liðnum vikum, nú síðast á nýjum og breyttum Subaru Outback og Renault Megane í Limited útgáfu, sem frumsýndir voru sl. laugardag, 7. mars. Við sama tækifæri var jafnframt sýndur Subaru Outback sem nú er í fyrsta sinn boðinn með sjálfskiptingu við öfluga dísilvélina.



Nýskráningar nýrra fólks- og sendibíla samkv. uppl. frá Samgöngustofu

 

 

 Febrúar 2015

Jan-feb 2015

Jan-feb 2014

Bifreiðaumboð

Einstakl. og fyrirt.

%

Bíla- leigubílar

Markaðs-hlutdeild

Fjöldi

%

Fjöldi

%

BL

127

25,1%

56

27,7%

356

24,3%

299

25,9%

Brimborg

90

17,8%

10

5,0%

210

14,3%

129

11,2%

Hekla

85

16,8%

22

10,9%

209

14,2%

209

18,1%

Toyota á Íslandi

78

15,4%

30

14,9%

303

20,7%

231

20,0%

Askja

55

10,9%

27

13,4%

184

12,5%

132

11,4%

Bílabúð Benna

40

7,9%

6

3,0%

77

5,2%

70

6,1%

Bernhard

22

4,3%

0

0,0%

56

3,8%

65

5,6%

Suzuki

5

1,0%

48

23,8%

57

3,9%

15

1,3%

Aðrir innflytj.

4

0,8%

3

1,5%

15

1,0%

5

0,4%

Samtals

506

100%

202

100%

1467

100%

1155

100%






×