Bílar

Bílar með slétta tölu í skráningarnúmeri bannaðir í París í gær

Finnur Thorlacius skrifar
Lögreglumaður í París skoðar skráningarnúmer bíla.
Lögreglumaður í París skoðar skráningarnúmer bíla.
Svo mikil er mengun af bílum í París að yfirvöld þar hafa brugðið á það ráð að banna á víxl bíla með skráningarnúmerum sem enda á sléttum tölum og oddatölum í einn dag í senn.

Í gær voru það bílar með skráningarnúmerum sem enda á sléttum tölum sem bannað var að aka um miðborgina. Samhliða banninu var ókeypis að ferðast með almenningssamgöngum í borginni.

Tvinnbílum og tvintengibílum er samt leyfilegt að aka um borgin á þessum banndögum. Þetta er ekki í fyrst skipti sem þessari aðferð er beytt, en það gerðist síðast í mars á síðasta ári. Viðurlög við brotum á banninu eru 30 evrur og í fyrra sektaði lögreglan í París 4.000 ökumenn sem hlýttu ekki banninu.

Frönsk yfirvöld eru að íhuga annarskonar aðgerðir til að stemma stigu við þeirri miklu mengun sem í borginni verður oft, meðal annars að banna eldri gerðir bíla sem menga meira en nýir og að lækka hámarkshraða allsstaðar niður í 30 km.






×