Bílar

Pólska útgáfan af Fast & Furious

Finnur Thorlacius skrifar
Nú þegar nýhafin er sýning á sjöundu mynd Fast & Furious er tilhlýðilegt að sjá hvernig pólska útgáfan af myndinni myndi líta út, ef hún væri af fullri lengd.

Í þessu myndskeiði eru á ferð pólskir grínistar og ná þeir algerlega stemmningunni úr myndunum Fast & Furious, en bara með húmorískari hætti. Í stað ofuröflugra bíla beita þeir fyrir sér Trabant, Fiat 126p og 125p bílum, eldgömlu mótorhjóli og enn eldri dráttarvél.

Grínistarnir sýna þarna ekki síðri leik en í myndunum frægu og líklega eiga þeir meiri von á Óskarstilnefningum en fyrirmyndin. Mynd sína hafa Pólverjarnir nefnt Ugly and Angry, alls ekki síðri titill en Fast & Furious. Ekki fylgir sögunni hvort von sé á myndinni í fullri lengd.






×