Nýr Mazda CX-5 frumsýndur Finnur Thorlacius skrifar 9. apríl 2015 09:17 Mazda CX-5.
Á laugardaginn milli kl. 12 og 16 verður frumsýndur nýr Mazda CX-5 AWD jepplingur í sýningarsal Mazda í Reykjavík að Bíldshöfða 8 og hjá Brimborg Akureyri, Tryggvabraut 5. Nýr Mazda CX-5 AWD er með nýrri kynslóð af SkyActiv fjórhjóladrifi sem búið er 27 skynjurum. Þeir meta stöðugt ástand vegarins, veggrip og hegðun ökumanns. Skilaboð eru stöðugt send út í hjól bílsins, jafnvel þó aðstæður breytist hratt. Átak og grip hvers hjóls er því ávallt eins og best verður á kosið miðað við aðstæður, sem gerir aksturseiginlega CX-5 frábæra. Þá er veghæðin 21 cm, sem er með því hæsta í þessum flokki jepplinga. Nýtt margmiðlunarkerfi var hannað í bílinn með 7“ snertiskjá í mælaborði. Auk þess hefur handbremsunni verið skipt út fyrir rafmagnshandbremsu og þar sem áður var handbremsa er nú komið drykkjar- og geymsluhólf milli framsæta. GPS búnaður með Íslandskorti er nú fáanlegur í nýjan Mazda CX-5. Mazda CX-5 er einn öruggasti bíll heims enda hlaut hann fullt hús stiga í öryggis- og árekstrarprófunum EURO NCAP. Burðarvirki bílsins er léttara en jafnframt sterkara en áður, en sem dæmi má nefna er 61% af þyngd bílsins hástyrktarstál. Í bílnum er blindapunktsaðvörun, skynvædd LED framljós sem lýsa inn í beygjur, sjálfvirk lækkun á aðalljósum ef bíll kemur á móti og snjallhemlunarkerfi sem grípur inní ef stefnir í árekstur. Brimborg hvetur áhugasama til að koma og prófa nýjan Mazda CX-5 AWD jeppa laugardaginn 11. apríl milli kl. 12 og 16.
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent