Bílar

Kia mest seldi bíllinn í mars

Finnur Thorlacius skrifar
Kia Sorento.
Kia Sorento.
Kia var mest seldi bíllinn á Íslandi í mars. Alls seldust 124 nýir Kia bílar í mánuðinum og merkið var með 12,7% markaðshlutdeild. Toyota var í öðru sæti með 112 nýja bíla, Ford í þriðja með 97 bíla og Volkswagen í því fjórða með 96 bíla selda.

,,Þetta eru afar ánægjulegar fréttir og við erum í skýjun yfir góðu gengi Kia bíla hér á landi. Með áreiðanleika, frábæra hönnun og 7 ára ábyrð, þá lengstu sem bílaframleiðandi veitir, er Kia að sanna sig sem eitt af söluhæstu merkjum á markaðnum í dag. Kia er ekki bara að ná framúrskarandi árangri hér á landi heldur um allan heim," segir Þorgeir Pálsson, sölustjóri Kia hjá Bílaumboðinu Öskju, sem er umboðsaðili Kia á Íslandi.






×