Bílar

Hummer Dennis Rodman er 3,2 tonn af vitleysu

Finnur Thorlacius skrifar
Skrautlegur í meira lagi.
Skrautlegur í meira lagi.
Hummer bíll Dennis Rodman körfuboltamanns er nú til sölu á Ebay. Hann er af árgerð 1996 og er af H1 gerð, stærstu gerðar Hummer, enda vegur hann lítil 3,2 tonn.

Útlitið á bílnum er ári magnað og er hann sprautaður af airbrush-listamönnum í Kaliforníu og naktar konur virðast prýða hann á alla kanta. Þessi bíll er ekki mikið notaður, en honum hefur aðeins verið ekið 35.400 kílómetra og að mestu geymdur inní risastórum bílskúr Rodman, ásamt fleiri lúxusbílum.

Blása má lofti í dekk bílsins með dælum innan úr bílnum, svo hann gæti verið heppilegur til jöklaferða hérlendis fyrir vikið. Bíllinn er útbúinn öflugu hljóðkerfi og stórir hátalarar eru í farangursrými jeppans. Ekki kemur fram hvert verð bílsins er, en fátt annað að gera en bjóða í. 

Það ætti að heyrast aðeins í þeim þessum.





×