Veiði

Gamla brúin yfir Brynjudalsá loksins farin

Karl Lúðvíksson skrifar
Eins og sjá má er brúin farin og Brúarhylur orðinn einn af flottustu stöðuunum í ánni
Eins og sjá má er brúin farin og Brúarhylur orðinn einn af flottustu stöðuunum í ánni Mynd: Atli Heiðberg
Þeir sem hafa veitt í Brynjudalsá þekkja vel gömlu brúnna sem lá yfir ánni rétt fyrir ofan þjóðveg en þessi brú hefur verið fjarlægð.

Þetta gerir einn skemmtilegasta veiðistaðinn í ánni bara ennþá betri en hann var því það sem truflaði oft veiðimenn við þennan stað var að veiða efsta partinn af staðnum almennilega því það var alltaf mikil hætta á að slá línu og flugu í brúnna fyrir aftan.  Eftir að brúin hefur verið fjarlægð er staðurinn virkilega flottur á að líta og klárt að þarna á eftir að setja í marga laxa í sumar.  Ástæðan fyrir því að brúin var fjarlægð liggur í slysahættu sem var að myndast af henni því hún hékk saman á heppninni og var fyrir löngu hætt að þjóna hlutverki sínu.

Brynjudalsá er í dag eingöngu veidd á flugu og eftir að laxastiginn í Efri Fossi var tekinn í gegn á laxinn auðvelt með að fara á efri svæðin þar sem virkilega gaman er að kasta á laxa og sjóbirtinga með nettum búnaði.  Einhverjar örfáar stangir eru eftir í Brynjudalsá og má nálgast þær á heimasíðu Hreggnasa, www.hreggnasi.is






×