Bílar

Kia framleitt 2 milljónir bíla í Evrópu

Finnur Thorlacius skrifar
Bíll númer 2.000.000 tilbúinn frá verksmiðjunni í Slóvakíu.
Bíll númer 2.000.000 tilbúinn frá verksmiðjunni í Slóvakíu.
Kia Motors fagnaði merkilegum áfanga á dögunum en suður-kóreski bílframleiðandinn hefur framleitt 2 milljónir bíla í Evrópu síðan verksmiðja Kia var opnuð í Zilina í Slóvakíu árið 2006.

Tveggja milljónasti Kia bíllinn kom af færibandinu í hinni hátæknivæddu verksmiðju í Zilina á dögunum og var um að ræða kraftmikinn Kia pro cee’d GT sem var á leiðinni til kaupanda í Belgíu.

Verksmiðjan í Zilina framleiðir Kia bíla fyrir Evrópumarkað og hefur hún átt fullt í fangi með að anna eftirspurn undanfarin misseri. Kia framleiddi alls 323.000 bíla í Slóvakíu á síðasta ári og 493.000 vélar.

,,Þessi sterka staða fyrirtækisins í framleiðslu og sú mikla eftirspurn sem er eftir Kia bílum á Evrópumarkaði sem og á öllum helstu markaðssvæðum heims sýnir svo ekki verður um villst að þeir séu að slá í gegn um allan heim.

Þarna spilar margt inní, lagleg hönnun, gæði, öryggi og sparneytni. Þá er 7 ára verksmiðjuábyrgð á öllum nýjum Kia bílum sem er lengsta verskmiðjuábyrgð sem nokkur bílaframleiðandi í heiminum býður upp á,“ segir Þorgeir Pálsson, sölustjóri Kia hjá Bílaumboðinu Öskju, sem er umboðsaðili Kia á Íslandi.






×