Bílar

BMW hægir á framleiðslu í Kína vegna minnkandi sölu

Finnur Thorlacius skrifar
BMW X3 og aðrir jepplingar lúxusframleiðendanna seljast áfram vel í Kína, en um hefur hægst í sölu fólksbíla.
BMW X3 og aðrir jepplingar lúxusframleiðendanna seljast áfram vel í Kína, en um hefur hægst í sölu fólksbíla.
BMW ætlar bæði að minnka framleiðslu í Kína á öðrum ársfjórðungi ársins og lækka verð bíla sinna vegna minnkandi sölu og er það til merkis um að um sé að hægjast á sölu bíla þar eystra.

Volkswagen og Ford hafa einnig lækkað verð á bílum sínum í Kína til að bregðast við minnkandi sölu. Sala erlendra bíla er nú svo til sú sama og í fyrra en sala innlendrar framleiðslu heldur þó áfram að aukast og heldur uppi þeim vexti sem er á sölu bíla í Kína.

Eftirspurn lúxusbíla hefur staðnað að undaförnu og háir innflutningstollar hafa haft þar mikil áhrif á síðustu mánuðum. Svo virðist sem jepplingasala lúxusbílaframleiðendanna muni þó tryggja áfram ágæta sölu, en svo til öll aukning í bílasölu í Kína eru vegna sölu á slíkum bílum, sem og minnstu fólksbílunum. BMW hyggur á framleiðslu minni bíls en BMW 3-línunnar fyrir Kínamarkað. 






×