Bílar

Atvinnubíladeild Öskju flytur á Fosshálsinn

Finnur Thorlacius skrifar
Þorsteinn, Agnar og Páll hjá atvinnubíladeild Öskju brostu sínu breiðasta í nýja sýningarsalnum.
Þorsteinn, Agnar og Páll hjá atvinnubíladeild Öskju brostu sínu breiðasta í nýja sýningarsalnum.
Söludeild atvinnubíla Öskju hefur flutt í nýjan og glæsilegan sýningarsal að Fosshálsi 1. Salurinn er alls 350 fermetrar að stærð og þar verða til sýnis hinir vinsælu atvinnubílar Sprinter, Vito og Citan frá Mercedes-Benz.

„Við erum afar ánægð að opna sérstakan sýningarsal fyrir atvinnubíla Mercedes-Benz og við hlökkum til að taka til starfa hér á Fosshálsinum. Allir atvinnumenn þekkja Mercedes-Benz atvinnubílana og vita hvað þeir standa fyrir hvað varðar gæði, þægindi, endingu og hagkvæman rekstur. Sprinter, Vito og Citan eru flottir og spennandi sendibílar í stækkandi atvinnubílaflota Mercedes-Benz,“ segir Agnar Daníelsson, sölustjóri Mercedes-Benz atvinnubíla hjá Öskju.

Vito er með mikla burðargetu, alls 1.369 kíló, og öflugan akstursöryggisbúnað. Vito er bæði framleiddur sem sendibíll og fólksflutningabíll. Citan er boðinn í ýmsum útgáfum, m.a. sem fjölnotabíll og hann kemur í mismunandi lengdum og býður upp á fjölmarga notkunarmöguleika. Sprinter hefur verið afar vinsæll og traustur bíll hér á landi sem og annarsstaðar og einn mest seldi bíllinn í sínum flokki um árabil. Allir bílarnir hafa fengið góða dóma fyrir aksturseiginleika, gæði og hagkvæmni.

,,Einnig verða í boði V-Class sem og hin breiða vörubílalína Mercedes-Benz auk hópferðabíla Mercedes-Benz og Evobus. Mercedes-Benz er stærsti framleiðandi atvinnubíla í heiminum í dag. Bílarnir hafa verið afar vinsælir á Íslandi og söluhæstir í mörgum flokkum atvinnubíla.  Öll þjónusta við Mercedes-Benz atvinnubíla verður áfram í höfuðstöðvum Öskju að Krókhálsi 11.






×