Segir Hreiðar, Sigurð og Ingólf hafa tekið ákvarðanir um viðskipti með hlutabréf í Kaupþingi Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 7. maí 2015 17:46 Hreiðar Már Sigurðsson, Sigurður Einarsson og Ingólfur Helgason. Vísir
Davíð Gunnarsson, fyrrverandi starfsmaður eigin viðskipta Kaupþings, sagði fyrir dómi í dag að sjálfstæði deildarinnar hefði farið minnkandi eftir því sem leið á ákærutímabilið í markaðsmisnotkunarmáli sem sérstakur saksóknari hefur höfðað á hendur níu fyrrverandi stjórnendum og starfsmönnum bankans. Níu manns áttu að koma og bera vitni í málinu í dag en aðeins náðist að taka skýrslu af fimm þeirra. Davíð var einn af þeim en hann stundaði hlutabréfaviðskipti á mörkuðum í Svíþjóð og Danmörku fyrir eigin viðskipti Kaupþings.Breyttist um mitt ár 2007 Björn Þorvaldsson, saksóknari, spurði hann hvort honum hafi verið kunnugt um stefnu deildar eigin viðskipta með bréf í Kaupþingi og hver hafi ákveðið hana. „Það má eiginlega segja að fram á mitt ár 2007 hafi hún verið ákveðin eingöngu af eigin viðskiptum, enda má skoða þróun bókarinnar og staðan er létt um mitt ár 207. Þá fer að halla undan fæti á markaði og það breytist aðeins hvar ákvarðanir eru teknar varðandi eigin bréf.” Davíð sagði ákvarðanatökuna hafa færst ofar í röðina innan fyrirtækisins. Spurður nánar út í hverjir hafa tekið ákvarðanirnar varðandi eigin bréf sagði Davíð það hafa verið yfirstjórn bankans. Dómsformaður, Arngrímur Ísberg, bað hann um að tilgreina hverjir hefðu verið í yfirstjórninni. „Þegar ég hugsa um yfirstjórn bankans er ég að hugsa um Hreiðar Má Sigurðsson, Sigurð Einarsson og Ingólf Helgason,” svaraði Davíð en þremenningarnir eru allir ákærðir í málinu fyrir markaðsmisnotkun með hlutabréf í Kaupþingi.Menn spurðu yfirmenn ekki spjörunum úr Davíð sagðist hafa fengið þessa vitneskju frá samstarfsmönnum sínum í deild eigin viðskipta og yfirmanni, verðbréfasölunum Pétri Kristni Guðmarssyni, Birni Sæ Björnssyni og Einari Pálma Sigmundssyni. Þeir eru allir ákærðir fyrir aðild sína að markaðsmisnotkun með hlutabréf í bankanum. Aðspurður hvort að Pétur og Birnir hafi verið óánægðir með mikil afskipti Inólfs Helgasonar af viðskiptum eigin viðskipta með bréf í Kaupþingi kvaðst Davíð ekki hafa orðið var við almenna óánægju. „Ég man eftir einu skipti þar sem mönnum fannst nóg um. Ég man að þeir settust niður með regluverði og “that was it”. Regluvörðurinn sagði að þetta væri allt í góðu.” Davíð sagði svo að menn hafi bara gert það sem þeim var sagt: „Það var ekki andrúmsloft þar sem það lá fyrir mönnum að spyrja yfirmenn spjörunum úr þegar mönnum var gert skýrt hvað þurfti að gera hverju sinni.”„Það meikar engan sens að skoða það” Mikið hefur verið rætt um svokallaða óformlega viðskiptavakt eigin viðskipta í hlutabréfum í Kaupþingi, hvort hún hafi verið þekkt á markaði og hvort bankinn hafi hagað viðskiptum sínum með eigin bréf á sama hátt og hann gerði í þeim félögum þar sem hann var með formlega viðskiptavakt, til dæmis Glitni og Landsbankanum. Saksóknari vill meina að svo sé ekki og bar undir Davíð tölur sem sýna að eigin viðskipti settu inn fleiri kauptilboð í Kaupþing en sölutilboð á ákærutímabilinu, öfugt við það sem það gerði hjá Glitni og Landsbankanum, þar sem sölutilboðin voru fleiri en kauptilboðin. „Eru þetta tölur yfir allt ákærutímabilið? Það meikar engan sens að skoða það. Þú verður að skoða hvern viðskiptadag fyrir sig,” sagði Davíð. „Já, það er nú aldeilis búið að gera það hér,” sagði dómsformaður þá og uppskar hlátur viðstaddra en við skýrslutökur yfir Pétri og Birni var hver einasti viðskiptadagur á ákærutímabilinu borinn undir þá. Verjandi Einars Pálma Sigmundssonar, sem var forstöðumaður eigin viðskipta og yfirmaður Davíðs, spurði hann hvort hann hefði einhvern tíma orðið var við að starfsmenn eigin viðskipta, og ákærðu í málinu, væru að stunda markaðsmisnotkun. Davíð sagðist aldrei hafa talið það; hann hafi aldrei orðið var við neitt annað en að þeir væru faglegir í sínu starfi.
Markaðsmisnotkun Kaupþings Tengdar fréttir Kínamúrarnir virðast ekki hafa verið nægilega sterkir "Ljóst er að þessi staða hefur aukið talsvert við hvata bankanna til þess að styðja við eigið hlutabréfaverð,“ sagði í bréfi Baldurs Thorlacius til Fjármálaeftirlitsins árið 2011. 7. maí 2015 13:32 „Hin meinta markaðsmisnotkun á sér dýpri rætur í blekkingum og málamyndagerningum“ Það kennir ýmissa grasa í svarbréfi Kauphallarinnar til Fjármálaeftirlitsins sem sent var haustið 2011 vegna gagnrýni sem FME setti fram á viðskiptaeftirlit Kauphallarinnar fyrir hrun. 7. maí 2015 15:11 Starfsmönnum Kauphallar í Svíþjóð þóttu mikil viðskipti Kaupþings með eigin bréf sérkennileg Baldur Thorlacius nefndi sérstaklega viðvörunarbjöllur sem fara í gang þegar eitthvað gerist á markaði sem gæta þurfi að. 7. maí 2015 11:56 Deilt um stöðu vitnis í markaðsmisnotkunarmálinu Vitnaleiðslur í markaðsmisnotkunarmáli Kaupþings hófust í dag í Héraðsdómi Reykjavík. Alls eru níu ákærðir í málinu fyrir annað markaðsmisnotkun og/eða umboðssvik. 7. maí 2015 11:02 Mest lesið „Skrifast ekki á okkur að það hafi farið eins og er farið“ Viðskipti innlent Icelandair geti ekki svarað fyrir orðræðuna Viðskipti innlent Engin ást eftir milli flugmanna og stjórnenda Viðskipti innlent Play er gjaldþrota Viðskipti innlent Play kvartaði undan Icelandair þremur vikum fyrir gjaldþrot Viðskipti innlent Norðlensk framleiðsla sem er að slá í gegn á Íslandi Samstarf Loka Kristjánsbakaríi Viðskipti innlent Sömu miðarnir kosti nú 370 þúsund Viðskipti innlent Kveðjubréf Einars forstjóra til starfsfólks Viðskipti innlent Fargjöld ekki hækkuð af ásettu ráði Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Skrifast ekki á okkur að það hafi farið eins og er farið“ Icelandair geti ekki svarað fyrir orðræðuna Play kvartaði undan Icelandair þremur vikum fyrir gjaldþrot Loka Kristjánsbakaríi Hætta rekstri tveggja skipa í hagræðingarskyni Engin ást eftir milli flugmanna og stjórnenda Sömu miðarnir kosti nú 370 þúsund Koma fólkinu heim með fimmtán milljóna króna leiguflugi Fargjöld ekki hækkuð af ásettu ráði Samgöngustofa fundaði nýlega með Play og fékk gögn frá KPMG „Við erum ekki með öll eggin í sömu körfu“ „Hver fyrir sig hvað það varðar“ Farþegar Play í Keflavík klóra sér í kollinum Ráðin sölu- og markaðsstjóri hjá Alfreð Kveðjubréf Einars forstjóra til starfsfólks Play er gjaldþrota Bein útsending: Staða aðfluttra á húsnæðismarkaði Spennandi tími til að opna nýjan fjölmiðill Lífsverk og Almenni lífeyrissjóðurinn í eina sæng Lagning gjaldþrota Fyrrverandi bankastjóri nýr forstjóri Thor landeldis Edda María leiðir stafræna markaðsþjónustu Vettvangs Uppsagnir hjá Fjársýslunni Guðný ráðin fræðslustjóri og Kristófer Orri í gjaldeyrismiðlun Kostaði tvo milljarða að selja Íslandsbanka Verðbólgan 4,1% og fer upp á milli mánaða Bein útsending: Framsýn forysta Opnar stað í anda Kaffi Vest í Fossvoginum Neyslan mikil og sjá ekki að stýrivextir fari hratt lækkandi Sexfölduðu veltuna á einu ári Sjá meira
Kínamúrarnir virðast ekki hafa verið nægilega sterkir "Ljóst er að þessi staða hefur aukið talsvert við hvata bankanna til þess að styðja við eigið hlutabréfaverð,“ sagði í bréfi Baldurs Thorlacius til Fjármálaeftirlitsins árið 2011. 7. maí 2015 13:32
„Hin meinta markaðsmisnotkun á sér dýpri rætur í blekkingum og málamyndagerningum“ Það kennir ýmissa grasa í svarbréfi Kauphallarinnar til Fjármálaeftirlitsins sem sent var haustið 2011 vegna gagnrýni sem FME setti fram á viðskiptaeftirlit Kauphallarinnar fyrir hrun. 7. maí 2015 15:11
Starfsmönnum Kauphallar í Svíþjóð þóttu mikil viðskipti Kaupþings með eigin bréf sérkennileg Baldur Thorlacius nefndi sérstaklega viðvörunarbjöllur sem fara í gang þegar eitthvað gerist á markaði sem gæta þurfi að. 7. maí 2015 11:56
Deilt um stöðu vitnis í markaðsmisnotkunarmálinu Vitnaleiðslur í markaðsmisnotkunarmáli Kaupþings hófust í dag í Héraðsdómi Reykjavík. Alls eru níu ákærðir í málinu fyrir annað markaðsmisnotkun og/eða umboðssvik. 7. maí 2015 11:02