„Ég set ekki merkimiða á það sem ég er – ég hef verið í góðum samböndum við bæði konur og menn. Ég elska þann sem ég elska, það er manneskjan sem skiptir máli,“ lét Amber Heard hafa eftir sér á GLAAD-verðlaunahátíðinni árið 2010. Þá var hún í sambandi með ljósmyndaranum Taysa van Ree. Tveimur árum seinna kynntist hún leikaranum Johnny Depp við tökur á myndinni The Rum Diary, en Heard var tekin fram yfir þær Keiru Knightley og Scarlett Johansson. Myndin reyndist örlagavaldur í lífi hennar því að í febrúar síðastliðnum gengu þau Heard og Depp í það heilaga í látlausri athöfn á heimili sínu í Los Angeles.
Nú þarf hún að venjast því að vökul augu slúðurpressunnar fylgi henni hvert fótmál. Einhverjar sögusagnir eru uppi um að hjónabandinu sé nú lokið eftir einungis tvo mánuði en ekkert er staðfest í þeim efnum.

Hversdagurinn býður hinsvegar upp á nóg af fylgihlutum. Hálsfestar í tonnatali og hattur á haus. Gróf stígvel við rómantískan kjól og ekki hægt að segja annað en hjónin, Depp og Heard, fari hvort öðru vel - allavega í fatastíl.
Neðst í greininni er hægt að sjá hvernig er best að stela stíl Heard úr íslenskum verslunum.



Kápa: Vila - 11.990,-
Hálsmen: Andrea - 16.990,-
Gallabuxur: Vila - 9.490,-
Samfestingur: Lindex - 7.995,-
Fylgstu með Glamour á Facebook og á Instagram.