Veiðitölur farnar að berast úr laxveiðiánum frá Landssambandi Veiðifélaga Karl Lúðvíksson skrifar 11. júní 2015 14:00 Norðurá hefur gefið 34 laxa á þessu veiðitímabili sem var að hefjast.
Eitt af því sem laxveiðimenn fylgjast vel með þá er það vikuleg uppfærsla á laxveiðitölum frá Landssambandi Veiðifélaga. Á heimasíðufélagsins, sem þú finnur hér, má finna vikulega uppfærslu á veiðitölum úr laxveiðiánum. Það er Þorsteinn Þorsteinsson sem heldur utan um þessa gagnaölfun sem fyrr sem er oft svo spennandi að veiðimenn bíða límdir við skjáinn daginn sem uppfærsla er í nánd til að sjá hvernig ánni sem á að veiða reiðir af í hverri viku. Fyrstu tölurnar eru þó bara úr þesim tveimur ám sem þegar hafa opnað fyrir veiðimenn en það er Norðurá og Blanda. Norðurá hefur gefið 34 laxa á 8 stangir en stangarfjöldin á eftir að aukast þegar líður á tímabilið, og svo Blanda með 22 laxa á 4 stangir. Norðurá er búin að hreinsa sig og lækkað mikið í vatni og er veiðin þar alveg í takt við væntingar, sama má segja um Blöndu. Nú fara árnar að opna hver af annari og við getum ekki annað en vonað að sumarið verði gott.
Stangveiði Mest lesið Svona á að hamfletta rjúpurnar Veiði Rjúpan kostar allt að 5000 krónur stykkið Veiði Hopar bleikjan nyrðra fyrir sjóbirtingi? Veiði 105 sm lax úr Víðidalsá Veiði Grimmdarverk í Þingvallavatni Veiði Mikill subbuskapur við sum vötnin Veiði Ein af veiðnustu flugunum í silung Veiði Mikið rætt um verðhækkanir veiðileyfa Veiði Fyrsti 20 punda laxinn í sumar Veiði Opið hús hjá SVFR annað kvöld Veiði