Lilja Katrín Gunnarsdóttir heldur úti girnilegu kökubloggi og gefur lesendum Matarvísis uppskrift af ómótstæðilegri og sumarlegu sítrónuköku
Ofureinföld kaka með sítrónukremi
225
g
smjör
1bolli vatn
2 1/4 bollar hveiti
2 egg
1/2 bolli sýrður rjómi
1/2 tsk möndludropar
1/2 tsk vanilludropar
1 tsk matarsódi
1 tsk salt
1bolli vatn
2 1/4 bollar hveiti
2 egg
1/2 bolli sýrður rjómi
1/2 tsk möndludropar
1/2 tsk vanilludropar
1 tsk matarsódi
1 tsk salt
Hitið ofninn í 180°C og smyrjið form sem þið viljið nota. Skellið smjöri og vatni í pott og leyfið að sjóða yfir miðlungshita. Hrærið hveiti og sykur saman og bætið því næst eggjum, sýrðum rjóma, möndludropum, vanilludropum, matarsóda og salti saman við. Blandið smjörblöndunni varlega saman við hveitiblönduna. Deigið á alls ekki að vera mjög þykkt. Bakið í 17 til 22 mínútur og kælið svo kökuna.
Krem
1 bolli mjólk
5 msk hveiti
20 msk sykur
1 sítróna
225 g mjúkt smjör
gulur matarlitur (ef vill)
Setijð mjólk, hveiti og sykur í pott og hrærið stanslaust í blöndunni yfir miðlungshita. Þegar blandan byrjar að sjóða leyfið henni þá að malla í 7 mínútur í viðbót en ekki gleyma að hræra stanslaust. Eftir 7 mínútur er blandan orðin þykk og flott. Takið blönduna af hellunni og bætið safa úr hálfri eða einni sítrónu saman við - allt eftir smekk. Hér er líka hægt að nota sítrónudropa. Kælið blönduna alveg í ísskáp. Þegar blandan er orðin köld er smjörinu hrært saman við í nokkrar mínútur eða þar til blandan er farin að líkjast þeyttum rjóma. Hér má bæta við gulum matarlit til að gera kremið aðeins gulara. Skreytið kökuna og skreytið að vild - jafnvel með sítrónuberki.