Veiði

Síðasta holl í Norðurá með 137 laxa

Karl Lúðvíksson skrifar
Veiðin í Norðurá er frábær þessa dagana og veiðimenn sem voru að koma úr ánni segja mikið af laxi í henni.

Það hefur heldur betur ræst úr hægri byrjun í Norðurá en áin var mjög vatnsmikil framan af sumri sem og göngurnar virtust frekar seint á ferðinni. Einhverjar svartsýnisraddir höfðu áhyggjur af þessu og töldu rólegt sumar framundan en þeim röddum hefur verið eytt eftir veiðitölurnar frá síðasta holli. Hollið landaði 137 löxum og höfðu veiðimenn á orði að þessi tala hefði leikandi getað farið yfir 200 laxa ef tökurnar hefðu ekki verið jafn grannar og þær voru.

Einn veiðimaður sem veiddi Laxfoss hvíldan að morgni setti í 14 laxa en náði ekki nema þremur á land og allt á smáar flugur. Svæðið neðan við Laxfoss er að sögn nokkuð vel setið af laxi og góður gangur er á göngum í ánna. Laxinn dvelur þó helst til lengi á neðri svæðunum en teljarinn í Glanna er ekki kominn upp í nema 319 laxa en flestir vilja sjá þessa tölu hærri svo efri svæðin komi almennilega inn. Veiðin á neðri svæðunum er þess mun betri. Norðurá er komin í 469 laxa og bendir allt til þess að hún eigi eftir að fara líklega nærri 1500 löxum í sumar haldi þessi veisla áfram.






×