Í kjölfarið urðu þurrsjampóin gríðarlega vinsæl, en eitthvað virðist bandaríska kvenþjóðin vera orðin þreytt á þeim og því hafa þær gripið til enn róttækari aðgerða. Já, þær fá sér bótox í hársvörðinn.
Bótox er ekki bara þekkt fyrir að lama vöðva í andliti, með því að rjúfa taugaboð milli vöðva og taugaenda, í fegurðarskyni, heldur hefur því einnig verið sprautað með góðum árangri í handarkrika til að stöðva offramleiðslu svita.

Dr. Engelman segist þurfa að sprauta um 100-200 sinnum í hársvörðinn, og noti til þess mjög fíngerða nál sem passar í hársekkinn. Aðgerðin hefur að hans sögn engin skaðleg áhrif á hárið, heldur auki það ef eitthvað er hárvöxtinn.
Hann segir viðskiptavini sína vera mest konur sem hafi verið orðnar þreyttar á því að þurfa að þvo sveitt hárið eftir hvern einasta hot yoga eða spinning tíma.
Fylgstu með Glamour á Instagram og á Facebook.