Dunkin' Dónar Atli Fannar Bjarkason skrifar 20. ágúst 2015 07:00 Nú segi ég stopp. Ekki nóg með að trjáfaðmandi hjólahippar séu að reyna að eyðileggja miðbæinn með því að banna mér að rúnta niður Laugaveginn, heldur á nú að troða bandarískum kleinuhringjasjoppum á hvert einasta götuhorn. Dunkin' Donuts var opnað á Laugavegi á dögunum sem þýðir að maður þarf að stíga út úr bílnum ef maður hefur áhuga á því að troða í andlitið á sér fjöldaframleiddum bandarískum kaloríubombum. Skorturinn á bílalúgum kristallast í því að það er búin að vera röð af fólki fyrir utan staðinn frá því að hann var opnaður. Innreið Dunkin' Donuts er til marks um gjaldþrot menningar okkar. Hvað varð um að kveikja á Kanaútvarpinu, reykja eina Winston og láta sig dreyma um Wendy's-borgara í herstöðinni á Keflavíkurflugvelli? Ég man enn þá hvar ég var þegar innreið kleinuhringjanna hófst. Það var árla morguns og Cocoa Puffsið var rétt byrjað að mýkjast ofan í skálinni. Ég sat við IKEA-skrifborðið mitt og vafraði um internetið í Macbook-fartölvunni minni þegar ég sá mynd af röðinni fyrir utan staðinn á Facebook. Eða var það Twitter? Mér var svo misboðið að ég frussaði morgunmatnum á skjáinn og fékk hóstakast sem hætti ekki fyrr en ég hellti ofan í mig stóru glasi af kóki. Röðin er til marks um hnignun samfélagsins og ég var óvinnufær af sorg. Ég tók iPhone-inn úr hleðslu, hringdi mig inn veikan, kveikti á Netflix og horfði á átta klukkustundir af Breaking Bad til að ná áttum. „Bandarískir kleinuhringir. Þvlíkt hneyksli,“ hugsaði ég og ég lét mig dreyma um KFC í kvöldmat. Ég er ekki einn um þessa skoðun. Stelpan sem kom með Dominos-pitsuna virtist alveg sammála, þó að hún hafi reyndar haft meiri áhuga á því að rukka mig en spjalla. Kortinu mínu var að vísu synjað þannig að ég setti þetta bara á VISA. Annars verð ég að fara að minnka pitsuátið – fæ mér Subway á morgun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Atli Fannar Bjarkason Mest lesið Ég er líka að taka fullan þátt í samfélaginu! Alina Vilhjálmsdóttir Skoðun Reykjavíkurborg og ábyrgðin sem hún forðast Kári Sigurðsson,Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Hvað ef gervigreind gjörbreytir 90 þúsund íslenskum störfum? Lilja Dögg Jónsdóttir Skoðun Það kemur ekki til greina að rífa upp samgöngusáttmálann Pétur Marteinsson Skoðun Pólitísk forgangsröðun í þágu allra Kópavogsbúa Sigurður Kári Harðarsson Skoðun Álftnesingar mæta afgangi Rakel Margrét Viggósdóttir Skoðun Blá útivist – sóknarfæri lýðheilsu Jón Pálsson Skoðun Börn í Laugardal fá ekki heitan mat í skólanum Jakob Jakobsson Skoðun Börn á biðlista eftir að komast á biðlista Auður Gunnarsdóttir Skoðun Tryggjum að Hveragerði verði áfram bær fyrir alla Birgitta Ragnarsdóttir Skoðun