Meryl Streep og Michael Keaton spá íslenskum Hrútum Óskarsverðlaunum Guðrún Ansnes skrifar 8. september 2015 13:15 Þessi tvö voru yfir sig ánægð með Hrúta áTelluride-hátíðinni um helgina.
Kvikmyndin Hrútar var valin sem framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna í kosningu innan Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar á mánudagskvöld. Mun myndin keppa fyrir Íslands hönd sem besta kvikmyndin á erlendu tungumáli. Segir Diljá Ámundadóttir, kynningarfulltrúi Hrúta, það þó ekki staðfestingu á að myndin fari alla leið til Hollywood. „Nú þarf bara að bíða þar til 28. febrúar en þá mun akademían þar ytra tilkynna tilnefningar til Óskarsverðlaunanna 2016,“ útskýrir hún og vísar til hinna eftirsóttu Un Certain Regard verðlauna á Cannes sem Hrútar hrepptu, sem og smekkfullrar sýningar á myndinni um liðna helgi á Telluride-hátíðinni í Colorado í Bandaríkjunum þar sem færri komust að en vildu. Endaði svo með að blásið var til óvæntrar aukasýningar, slíkur var áhuginn á íslenskum hrútum. Diljá segir að þar hafi þungavigtarfólk í kvikmyndaiðnaðinum á borð við Michael Keaton og Merryl Streep tjáð sig um ágæti Hrúta. „Bransinn er mikið að tala um myndina á jákvæðum nótum og telur líklegt að hún rati alla leið. Hvernig sem fer svo á endanum hefur þetta umtal klárlega komið íslenskri kvikmyndagerð enn betur á kortið,“ segir Diljá að lokum. Fari Hrútar alla leið verður kvikmyndin sú þriðja í sögu íslenskrar kvikmyndagerðar til að slást um Óskarinn fyrir hönd Íslendinga.
Tengdar fréttir Hrútar er framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna Meðlimir Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar, ÍKSA, völdu kvikmyndina Hrúta sem framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna á næsta ári. 8. september 2015 14:50 Margir telja að Hrútar fái Óskarstilnefningu Fáar myndir hafa notið jafn mikila vinsælda eins og hin umtalaða íslenska verðlaunamynd Hrútar en vísa þurfti rúmlega 100 manns frá við frumsýningu myndarinnar í Telluride. 6. september 2015 22:15 Mest lesið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Lífið Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Lífið Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Lífið Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Lífið Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Lífið Fleiri fréttir Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Óskarsverðlaunaleikstjórinn Robert Benton látinn Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Fyrsta íslenska myndin í Cannes Premiere-flokki Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Viðræður hafnar um framhald á Adolescence Rísandi stórstjarna og alvöru hjartaknúsari Bestu myndir Vals Kilmer og verstu floppin Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes Sjá meira
Hrútar er framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna Meðlimir Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar, ÍKSA, völdu kvikmyndina Hrúta sem framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna á næsta ári. 8. september 2015 14:50
Margir telja að Hrútar fái Óskarstilnefningu Fáar myndir hafa notið jafn mikila vinsælda eins og hin umtalaða íslenska verðlaunamynd Hrútar en vísa þurfti rúmlega 100 manns frá við frumsýningu myndarinnar í Telluride. 6. september 2015 22:15