Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Víkingur - Breiðablik 2-2 | Vítaspyrnu-Ívar bjargaði stigi Tómas Þór Þórðarson á Víkingsvelli skrifar 13. september 2015 19:30 Ívar Örn tryggði Víkingum stig með marki úr vítaspyrnu undir lokin. vísir/stefán
Víkingur og Breiðablik skildu jöfn, 2-2, í skemmtilegum leik á Víkingsvelli í 19. umferð Pepsi-deildar karla í dag. Með úrslitunum er Breiðablik væntanlega endanlega úr leik í baráttunni um titilinn og Víkingar færast nær því að bjarga sæti sínu. Eftir að liðin voru aðeins búin að þreifa hvort á öðru hóf Andri Rafn Yeoman fyrri hálfleikinn fyrir alvöru með fínu skoti sem fór rétt framhjá markinu. Hinum megin reyndi Vladimir Tufegdzic skot úr góðu færi beint á markið og Arnþór Ingi Kristinsson þrumaði frákastinu hátt yfir tómt markið. Þetta var merki um það sem var á döfinni í ansi fjörlegum fyrri hálfleik. Fínt hraði var í leiknum þó það voru Blikar sem sóttu meira á meðan Víkingar reyndu að beita skyndisóknum Erlendur Eiríksson var ansi duglegur að flauta í fyrri hálfleik, eitthvað sem er ólíkt honum. Blikar fengu nokkrar aukspyrnur í kringum teiginn og hótaði Oliver Sigurjónsson úr þeim öllum. Hann gerði svo meira en að hóta þegar hann skoraði fyrsta markið á 18. mínútu leiksins beint úr aukaspyrnu. Blikar fengu aukaspyrnu beint á móti markinu rétt fyrir utan D-bogann og smellti Oliver boltanum í samskeytin. Virkilega fallegt mark hjá Oliver og ekki hans fyrsta beint úr aukaspyrnu í sumar. Fyrir utan markið átti hann þrusu góðan leik, en miðað við frammistöðu hans í sumar hjá Blikum og U21 árs landsliðinu má reikna með að hann kveðji klakann aftur í vetur. Tufegdzic var mjög sprækur í fremstu víglínu Víkings. Þetta er einfaldlega ljómandi góður knattspyrnu og mun sterkari en hæð hans og líkamsburðir gefa til greina. Hann hélt annars frábæru miðvarðapari Blika á tánum allan tímann og fékk nokkur góð færi. Tufegdzic fékk lang besta færi Víkinga í fyrri hálfleik þegar hann fór ansi illa með Elfar en Gunnleifur bjargaði honum með glæsilegri markvörslu. Staðan 1-0 í hálfleik fyrir Breiðablik. Serbinn öflugi hélt áfram að láta vita af sér og uppskar fyrir erfiði sitt eftir sléttar 60 sekúndur í fyrri hálfleik. Damir Muminovic var að drolla með boltann í teignum og Tufegdzic hirti boltann af honum. Hann var svo gríðarlega yfirvegaður í færinu og skoraði framhjá Gunnleifi, 1-1. Kristinn Jónsson átti líka sinn þátt í markinu en það er ekki oft sem varnarmenn Blika eru svona sofandi. Seinni hálfleikurinn var jafn fjörugur og sá fyrri. Mikill hraði var í leiknum og þegar Blikar fóru að opna sig aðeins til baka nýttu Víkingar plássin sem mynduðust þar. Þeir voru vel meðvitaðir um að jafntefli gerði lítið fyrir Blika í toppbaráttunni. Eftir ríflega tíu mínútur í seinni hálfleik tóku Blikarnir völdin og fór að sækja miklu meira. Kristinn Jónsson var, eins og svo oft áður, virkilega eitraður á vinstri vængnum og kom mikið sóknarlega í gegnum hann. Sóknarlota Blika skilaði marki á 71. mínútu þegar Höskuldur Gunnlaugsson fékk sendingu inn á teiginn, sendi Alan Lowing á afturendann og skoraði með góðu skoti. 2-1. Hann fékk sendingu inn á teiginn frá Andra Rafni Yeoman sem var góður í leiknum. Andri Rafn á oft þessa leiki þar sem lítið fer fyrir honum en samt er hann að spila vel. Í dag var hann frekar áberandi; hlaupandi út um allan völl að vinna boltann og hafði sig meira frammi í sóknarleiknum. Stoðsendingin til marks um það. Þegar allt virtist stefna í sigur Breiðabliks fengu Víkingar vítaspyrnu á 88. mínútu. Eftir aukaspyrnu inn á teiginn virtist boltinn fara í höndina á einum Blikarnum. Erlendur virtist fyrst ekki ætla að dæma en benti svo allt í einu á punktinn. Ívar Örn Jónsson, sem er nú frekar kallaður Vítasspyrnu-Ívar en Aukaspyrnu-Ívar, fór á punktinn og skoraði af miklu öruggi, 2-2, á 89. mínútu. Ívar búinn að skora úr þremur vítaspyrnum í seinni umferðinni og tryggja Víkingum með þeim fimm stig. Lokatölurnar, 2-2 í fjörugum leik á Víkingsvelli. Milos: Fannst við vera betri aðilinn í dag„Það er ekki spurning, við áttum jafnvel skilið þrjú stig. Við áttum fleiri góð færi en þeir hérna í dag,“ sagði Milos Milojevic, þjálfari Víkings, aðspurður hvort Víkingur hefði átt skilið stig í leiknum í kvöld. „Boltinn vildi ekki fara inn svo að það var ánægjulegt að fá eitt stig eftir vítaspyrnuna. Ég er er ánægður með stig gegn jafn sterku liði þótt þau hefðu mátt vera þrjú.“ Leikmenn Víkings léku afar kaflaskiptan leik í dag. „Þú spilar eins mikið og andstæðingurinn leyfir þér. Breiðablik er með mjög gott lið og við sáum hversu góðir þeir eru á köflum en mér fannst þeir ekkert betri en við í dag.“ Milos sagðist ekki hafa séð brotið þegar dæmd var vítaspyrna undir lok venjulegs leiktíma. „Ég sá ekki hvað gerðist en strákarnir sögðu að vinstri bakvörður þeirra hefði fengið boltann í höndina sem var fyrir ofan höfuðið á honum. Þeir sögðu að þetta hefði aldrei verið spurning.“ Milos var ekki tilbúinn að segja að sætið í deild þeirra bestu á næsta ári væri tryggt. „Það er stór brekka fyrir Leiknismenn að klífa en það eru þrír leikir eftir og níu stig í pottinum. Ef við nælum í þrjú stig þar þá erum við öruggir en við erum ekkert hættir þar. Við ætlum okkur níu stig.“ Arnar: Hægt að óska FH til hamingju með titilinn„Þetta voru tvö stig töpuð úr því sem komið var. Við vorum að mínu mati sterkara liðið í fyrri hálfleik og fórum með sanngjarnt forskot inn í hálfleik,“ sagði Arnar Grétarsson, þjálfari Blika, vonsvikinn eftir leik. „Þeir fá jöfnunarmark strax í upphafi seinni hálfleiks sem var heppnismark að mínu mati. Þetta var ólíkt okkur að fá á okkur þetta mark.“ Arnar tók undir að það hefði verið meira jafnræði með liðunum í seinni hálfleik. „Þetta varð meiri barningur í seinni hálfleik og liðin skiptust á því að sækja. Við fáum mark eftir góða sókn en svo fáum við á okkur víti í lokin sem var helvíti súrt,“ sagði Arnar sem vildi ekki skammast út í Erlend Eiríksson, dómara leiksins. „Ég var í engri aðstæðu til þess að dæma um hvort þetta var víti eða ekki. Ef dómari dæmir víti er það víti, sama hvað ég segi og ég vona að þetta hafi verið rétt.“ Arnar var hrifinn af Víkingsliðinu. „Víkingur er með flott lið og við vissum að við þyrftum að eiga algjöran toppleik til þess að vinna í dag. Þeir hafa ekki gefið mörg færi á sér og spiluðu líkt og ég átti von á.“ Arnar fór ekkert í felur með það að staðan væri orðin afar erfið hjá Breiðablik í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn. „Þó að það sé tölfræðilegur möguleiki þá held ég að þessu sé lokið. Við munum halda áfram en ég held að við getum óskað þeim til hamingju með titilinn. Þeir eru vel að því komnir þótt ég vona að þeir verði ekki meistarar í næstu umferð.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Uppgjörið: Breiðablik 3-2 Víkingur | Breiðablik Íslandsmeistari 2025 Íslenski boltinn Stólarnir fastir í München Körfubolti Íslensk hetja sendi Bergen upp í sjöunda himinn: Ein bestu kaup félagsins Fótbolti Sjáðu mark Hákonar og vítavörslurnar þrjár Fótbolti Grindavík - Njarðvík 109-96 | Grindvíkingar unnu í heimkomunni Körfubolti Sláandi xG tölfræði hjá Manchester United Enski boltinn „Heimskulegt og asnalegt hjá mér“ Golf Semenya hættir baráttu sinni Sport Bjóða upp á Frank Booker-árskort Körfubolti Afar ólík viðbrögð hjá Hlyni Bærings og Benna Gumm eftir byrjun þáttarins Körfubolti Fleiri fréttir „Verðum nú að fagna þessu aðeins“ Uppgjörið: Breiðablik 3-2 Víkingur | Breiðablik Íslandsmeistari 2025 Frítt inn í kvöld þegar Blikakonur geta orðið Íslandsmeistarar „Mjög erfitt fyrir okkur ef við klárum þetta ekki í kvöld“ Utan vallar: Er FH að endurtaka stærstu mistök í sögu félagsins? Úr klefaleysi og snjómokstri í að taka við landsliði eða Blikum? Bjarni Jó kveður Selfoss „Ótrúlega gaman að sjá þessa stelpu dafna“ Stjarnan - FH 3-4 | FH endurheimti annað sætið Arftaki Heimis fundinn: „Alltaf áhætta að gera breytingar“ Erfitt að yfirgefa Þrótt en starfið hjá KSÍ of spennandi til að hafna því „Síðan koma raddir um að þetta sé ekkert svo alvarlegt“ „Það er allt mögulegt“ Uppgjör: Víkingur - Valur 3-0 | Sannfærandi heimasigur í rigningunni Heimir yfirgefur FH að tímabilinu loknu Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 3-2 | Aftur mistókst Blikum að tryggja titilinn Gera aðra atlögu að titlinum eftir handleggsbrot Elínar Helenu Davíð Smári hissa: „Sökudólgur sjálfur með því að setja viðmiðið mjög hátt“ Hans Viktor framlengir við KA Fengu nóg af skeytingarleysi og mismunun Jón Þór ráðinn í björgunaraðgerðir hjá Vestra Sjáðu boltahnupl Valdimars sem nánast tryggði Víkingum titilinn Ræddu brotthvarf Davíðs: „Þetta er eins og köld vatnsgusa“ Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur 2-3 | Valdimar Þór fór langleiðina með að tryggja titilinn „Verðum bara að halda áfram þangað til að þetta er búið“ Sölvi Geir eftir dramatískan sigur í Garðabæ: „Það er alltaf trú“ Davíð Smári hættur fyrir vestan Þjálfari Fram: „Hvað er árið aftur?“ Léku fjörutíu leiki saman á Englandi en slást um titilinn á Íslandi í kvöld Frá Fram á Hlíðarenda Sjá meira