Bandaríska kvikmyndatímaritið Variety birtir á vef sínum í dag lista yfir þær myndir sem hún telur eiga möguleika á því að hreppa Óskarsverðlaunin á næsta ári.
Á meðal þeirra mynda sem Variety telur líklegar til að hreppa verðlaunin sem besta erlenda myndin er íslenska kvikmyndin Hrútar. Leikstjóri myndarinnar er Grímur Hákonarson en með aðalhlutverk fara þeir Sigurður Sigurjónsson og Theódór Júlíusson.
Myndin fjallar um bræðurna Gumma og Kidda sem hafa ekki talað saman í fjörutíu ár þrátt fyrir að búa hlið við hlið. Þegar riðuveiki kemur upp í dalnum neyðast þeir til að taka þráðinn upp til að bjarga því sem stendur þeim næst.
Hrútar hafa vakið mikla athygli erlendis og vann myndin meðal annars til verðlauna á Cannes-kvikmyndahátíðinni í maí síðastliðnum í flokknum Un Certain Regard en myndina má enn sjá í Bíó Paradís.
Tónskáldið Jóhann Jóhannsson er svo talinn líklegur til að hljóta tilnefningu fyrir tónlistina í myndinni Sicario.
Daði líklegur til að hljóta tilnefningu fyrir tæknibrellur í Everest
Þá er kvikmynd Baltasars Kormáks, Everest, talin líkleg til að hreppa tilnefningu fyrir tæknibrellur en Daði Einarsson er maðurinn á bak við þær.
Jafnframt er talið að Baltasar eigi möguleika á tilnefningu sem besti leikstjórinn og Everest sem besta myndin. Í þessum tveimur flokkum kemst myndin þó ekki inn á topp 10 lista Variety, líkt og er tilfellið með tæknibrellurnar.
Óskarsverðlaunin verða veitt í 88. sinn þann 28. febrúar næstkomandi en tilkynnt verður um tilnefningar þann 14. janúar.
Íslensk kvikmynd í fullri lengd hefur aðeins einu sinni hlotið tilnefningu til verðlauna sem besta erlenda myndin. Það var mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Börn náttúrunnar, árið 1992.
Aðrir Íslendingar sem hlotið hafa tilnefningu til Óskarsverðlauna eru Björk Guðmundsdóttir og Sjón fyrir lagið I‘ve Seen It All úr myndinni Dancer in the Dark, Rúnar Rúnarsson og Þórir Snær Sigurjónsson fyrir stuttmyndina Síðasti bærinn í dalnum og svo Jóhann Jóhannsson fyrir tónlistina við myndina The Theory of Everything.
Fimm íslenskir Óskarar á næsta ári?

Tengdar fréttir

Hrútar er framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna
Meðlimir Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar, ÍKSA, völdu kvikmyndina Hrúta sem framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna á næsta ári.

Sigurganga Hrúta heldur áfram
Hrútar var valin besta kvikmyndin á Kvikmyndahátíðinni í Palic í Serbíu í gær.

Tæplega 25.000 manns hafa séð Everest á Íslandi: Universal trónir á toppnum
Í kvöld nær Universal að tryggja sér tekjuhæsta ár allra tíma fyrir kvikmyndaver á Íslandi og taka þar með metið af Warner Bros, sem náði titlinum 2010.

„Myndin ekki tekin upp á Everest af sömu ástæðu og Gravity var ekki tekin upp í geimnum“
Ísland í dag kíkti á Baltasar Kormák á frumsýningu Everest hér á landi. Myndaveisla af gestum sýningarinnar fylgir fréttinni.

Frá Cannes til Hólmavíkur
Hrútaþuklseinvígi á milli leikaranna Sigga Sigurjóns og Theodórs Júlíussonar.