Guðjón Pétur aftur í Val Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. október 2015 17:47 Guðjón Pétur Lýðsson með Sigurbirni Hreiðarssyni. Mynd/Valur
Guðjón Pétur Lýðsson spilar með Val í Pepsi-deildinni á komandi sumri en Valsmenn sögðu frá því á heimasíðu sinni í kvöld að miðjumaðurinn hafi skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Guðjón Pétur Lýðsson hefur spilað með Breiðabliki í Pepsi-deildinni undanfarin þrjú tímabil en lék með Valsmönnum frá 2011 til 2012. Hann Guðjón Pétur er 28 ára miðjumaður sem hefur jafnan verið í hópi þeirra leikmanna sem leggja upp flest mörk fyrir félaga sína. Guðjón Pétur skoraði 4 mörk og gaf 6 stoðsendingar í 20 leikjum með Blikum í sumar en tímabilið á undan var hann með 7 mörk og 6 stoðsendingar. Á þremur tímabilum hans í Kópavoginum var hann með 17 mörk og 19 stoðsendingar í 59 leikjum. Guðjón Pétur hefur aldrei skorað meira á einu tímabili en á fyrsta ári sínu með Val þegar hann var með 8 mörk og 4 stoðsendingar í aðeins 17 leikjum en það var sumarið 2011. Hann fann sig ekki eins vel árið eftir og færði sig yfir í Kópavoginn eftir 2012-tímabilið. „Guðjón Pétur er gríðarlega hæfileikaríkur knattspyrnumaður og hefur gríðarlegan metnað fyrir hönd félagsins," segir í frétt Valsmanna og þar segir einnig: „Knattspyrnudeild Vals stefnir enn hærra eftir bikarmeistaratitil og skemmtilega spilamennsku Valsliðins á síðustu leiktíð og er Guðjón Pétur mikilvægur hlekkur í góðu Valsliði sem tekur þátt í Evrópukeppninni á komandi leiktíð."Mynd/ValurMynd/ValurMynd/Valur
Dominos-deild karla Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Enski boltinn Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Enski boltinn Fleiri fréttir Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Sjá meira