Sport

Lykilmaður hjá Þór fallinn frá

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Rúnar Haukur Ingimarsson.
Rúnar Haukur Ingimarsson. Myndin er af heimasíðu Þórs
Rúnar Haukur Ingimarsson, lykilmaður í starfi Íþróttafélagsins Þórs á Akureyri, er látinn. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri í nótt eftir harða og erfiða baráttu við illvígan sjúkdóm. Hann var 51 árs að aldri. Frá þessu er greint á heimasíðu Þórs.

Auk þess að vera allt sitt líf mikill stuðningsmaður félagsins vann hann mikið og óeigingjarnt sjálfboðastarf í þágu félagsins. Hann sat um skeið í stjórn körfuknattleiksdeildar og í fjölmörgum nefndum og ráðum fyrir Þór.

Rúnar Haukur hélt vel utan um tölvubúnað félagsins og var hann afar afkastamikill ljósmyndari. Eftir hann liggja þúsundir ljósmynda frá leikjum Þórs og ýmsum viðburðum hjá félaginu. Íþróttafélagið Þór sendir fjölskyldu og vinum Rúnars Hauks  innilegar samúðarkveðjur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×