Punyed, sem var lykilmaður í Íslandsmeistaraliði Stjörnunnar í fyrra, hefur spilað hér á landi síðan 2012.„Þetta er stórt nafn í íslenskum fótbolta og einn af betri miðjumönnunum,“ segir Bjarni.
Sjá einnig:Pablo Punyed: Ég veit hvers virði ég er
„Við erum að endurnýja liðið okkar. Það verða töluverðar breytingar á því. Þetta er flott byrjun á því,“ segir hann, en Bjarni ætlar að fá fleiri leikmenn til liðsins á næstu vikum.
„Við viljum helst að ná í betri leikmenn en voru hjá liðinu í fyrra. Það verður svolítil uppstokkun á okkar hópi núna. Þetta er frábær byrjun á því og vonandi verða þeir leikmenn sem við náum í á næstunni í stíl við þessi kaup.“
Myrkraverk
ÍBV missti á dögunum tvo byrjunarliðsmenn; Víði Þorvarðarson og Spánverjann José „Sito“ Enrique sem báðir fóru í Fylki. Bjarni vildi halda þeim báðum.
„Að sjálfsögðu vildi ég halda öllum leikmannahópnum en ef menn vilja ekki vera í Vestmannaeyjum höfum við ekkert að gera við þá. Það er afskaplega einfalt,“ sagði Bjarni.
„Það er ekki hægt að líkja brotthvarfi Víðis og Sito saman. Víðir taldi sig þurfa á nýrri áskorun að halda. Hann var samningslaus og réði ferðinni sjálfur. Ég vildi halda honum og Sito en það voru einhver myrkraverk í því dæmi.“
Hemma boðið á Þjóðhátíð
Sem fyrr segir fóru þeir báðir í Fylki þar sem Eyjamaðurinn sjálfur, Hermann Hreiðarsson, er maðurinn í brúnni. Er hann velkominn á Þjóðhátíð eftir þessar ránsferðir til Eyja?
„Já, örugglega. Það er alltaf líf í kringum Hemma. Hann verður alltaf Vestmannaeyingur en þessi bransi er bara harður. Baráttan á leikmannamarkaðnum er ekkert minni en baráttan inni á vellinum,“ segir Bjarni, en hvað vill hann gera með Eyjaliðið á næstu leiktíð?
„Ég vil komast úr þessari fallbaráttu til að byrja með. Við gefum engar stærri yfirlýsingar í bili. Við reynnum að manna okkur almennilega upp núna, æfa vel í vetur og mæta með ferskan leikstíl næsta vor,“ segir Bjarni Jóhannsson.