Bækur
Amma óþekka og tröllin í fjöllunum
Jenný Kolsöe
Útgefandi: Bókabeitan
Myndir: Bergrún Íris Sævarsdóttir
Fjöldi síðna: 57
Amma óþekka er ný barnabók frá Bókabeitunni sem hentar sérstaklega yngri lesendum og þeim sem eru að æfa sig í lestri. Það þýðir þó ekki að orðaforðinn sé einfaldur heldur er einmitt lagt upp úr fjölbreytni í orðavali og því að kynna lesendur fyrir margslungnum og misflóknum orðum íslenskrar tungu.
Þessi bók er ólík lestraræfingabókum sem krakkar eiga að venjast, því þótt lögð sé áhersla á ákveðna stafi í efnisgreinum sögunnar og framburðareinkenni svo sem tvöfalda samhljóða, þá er framvindan skemmtileg.
Sagan segir frá Fanneyju Þóru sem fer í ferðalag með ömmu sinni út á land, nánar tiltekið í Trölladyngju. Þar tjalda þær stöllur, grilla pylsur og eiga saman huggulega stund í íslenskri náttúru. Amma óþekka er myndlistarmaður með sterkar skoðanir og greinilega flott fyrirmynd. Hún segist ætla að gera meira en milljón skissur á meðan á dvöl þeirra stendur svo hún þarf aldeilis að halda á spöðunum. Fanney Þóra lætur eina duga og fer svo í skoðunarferð. Á rölti sínu hittir hún trölladreng sem á ýmislegt sameiginlegt með stúlkunni en ekki líður á löngu þar til þau eru öll á hlaupum undan náttúruöflunum; trölladrengurinn, amma hans, Fanney Þóra og amma óþekka.
Líkt og fram hefur komið er bókin sniðin að þörfum þeirra sem eru að æfa sig í lestri og auka á orðaforða sinn. Hún er fyrsta bókin í nýrri röð frá Bókabeitunni sem nefnist Ljósaserían og hefur þetta að leiðarljósi. Leturgerð er læsileg og í stærra lagi, línubil sem andar vel og efnisgreinum er skipt niður í styttri búta svo hægt er að hvíla sig reglulega án þess að tapa þræði.
Niðurstaða: Skemmtileg bók fyrir unga lesendur sem eru að æfa sig í lestri. Stútfull af nýjum orðum og leyndum framburðaræfingum.
Langmæðgur í Trölladyngju
