Andrés og Jón Birta Björnsdóttir skrifar 17. desember 2015 07:00 Talsvert hefur borið á að landsmenn eigi erfitt með að átta sig á söguþræði, aðalpersónum og framvindu í einu vinsælasta jóla-laginu, Jólasveinar einn og átta. Hér verður ykkur rétt hjálparhönd í þeim efnum. Jólasveinarnir voru sum sé einn og átta, en þarna er stuðst við ævaforna talningaraðferð þar sem einn og átta eru átján en ávallt þurfti að draga fimm frá þegar þessi aðferð var notuð. Átján mínus fimm, sem sagt þrettán eins og allir vita. Að hitta Jón á Völlunum hefur einnig vafist fyrir einhverjum en þarna er einfaldlega um að ræða samheiti yfir þá daglegu iðju að fara að sofa. Uppruna orðatiltækisins má rekja til góðkunningja Jóns Más Péturssonar sem lengi bjó í Vallahverfinu í Hafnarfirði. Var það samdóma álit samferðamanna hans að Jón væri leiðinlegasti maður þjóðarinnar frá landnámi og að hitta Jón á Völlunum þýddi óumflýjanlega að menn lognuðust útaf á meðan Jón óð elginn. Þá er það hann Andrés, en hann er umboðsmaður jólasveinanna til margra ára, dulur maður og óframfærinn en sinnir sínu starfi af stakri natni. Einhverjir hafa velt fyrir sér hvernig jólasveinarnir fara að því að setja gjafir í skó allra íslenskra barna til sjávar og sveita auk þess að leiða yfirspennta krakka kringum jólatré á vegum allra starfsmannafélaga landsins. Þetta er honum Andrési og excel-skjölunum hans að þakka. En þegar þarna var komið sögu hafði Andrés sopið ótæpilega á púrtvíni og hent í status þar sem hann fagnaði komu flóttamanna til landsins auk þess að lýsa yfir velþóknun á fyrirhugaðri byggingu mosku í Reykjavík. Andrés var því frekar timbraður og utangátta og beið þess að vera fórnað á altari nettröllanna. Þegar fyrrnefndar upplýsingar, sem fengnar voru eftir mikla yfirlegu á handritadeild stofnunar Árna Magnússonar, eru öllum ljósar ættu allir að geta tekið hraustlega undir á næsta jólaballi með allar staðreyndir málsins í farteskinu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Birta Björnsdóttir Mest lesið Ójafn leikur á Atlantshafi Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Eingreiðsla til öryrkja í desember bundin við lögheimili á Íslandi Jón Frímann Jónsson Skoðun Sykursýki snýst ekki bara um tölur Erla Kristófersdóttir,Kristín Linnet Einarsdóttir Skoðun Ég á þetta ég má þetta Arnar Atlason Skoðun Ef eitthvað væri að marka Bjarna Gunnar Smári Egilsson Skoðun Olnbogabörn ríkisins góðan dag Vigdís Gunnarsdóttir,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Þuríður Sverrisdóttir,Júnía Kristín Sigurðardóttir Skoðun „Samræði“ við barn er ekki til - það er alltaf ofbeldi Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Fúsk eða laumuspil? Eva Hauksdóttir Skoðun Íslenska módelið í forvörnum – leiðarljós sem við erum að slökkva á Árni Guðmundsson Skoðun Leikskólar sem virka: Garðabær í fremstu röð Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir Skoðun
Olnbogabörn ríkisins góðan dag Vigdís Gunnarsdóttir,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Þuríður Sverrisdóttir,Júnía Kristín Sigurðardóttir Skoðun
Olnbogabörn ríkisins góðan dag Vigdís Gunnarsdóttir,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Þuríður Sverrisdóttir,Júnía Kristín Sigurðardóttir Skoðun