Kærastan mín, druslan Atli Fannar Bjarkason skrifar 23. júlí 2015 07:00 Kærustunni minni var nauðgað áður en við kynntumst. Þessi ömurlegi atburður hefur haft mikil áhrif á hana en ég dáist að styrk hennar, enda skilja stór áföll eftir sig djúp sár sem gróa mishratt og fólki ferst misvel að ná bata. Því miður virðist réttarkerfið hannað til að þagga niður í fórnarlömbum kynferðisofbeldis. Allt of oft heyrum við af brotaþolum segja frá lögmönnum og lögreglufólki sem hvöttu þau beinlínis til að leita ekki réttar síns. Lögmaður kærustunnar minnar er einn af þeim en hún hlustaði ekki og kærði nauðgarann. Hann var hins vegar ekki ákærður fyrir ofbeldið og hefur því af fullkomnu ábyrgðarleysi aðeins þurft að takast á við eigin samvisku síðustu ár. Ég vorkenni þessum náunga jafn mikið og ég dáist að styrk kærustunnar minnar – ekki rugla því saman við samúð því hana fær hann ekki. Það getur ekki verið auðvelt að vera svona hræðileg manneskja. Hann er nefnilega ekki skrímsli heldur maður sem fer út í búð og skoðar fréttir á netinu eins og við hin. Á hverjum morgni neyðist hann hins vegar til að horfast í augu við sína eigin sorglegu spegilmynd. Verði honum að því og megi hann éta skít. Ég átta mig á þversögninni sem felst í því að svara ofbeldi með meira ofbeldi. Ég er hins vegar ekki vandaðri maður en svo, eða kannski svo kjánalega ástfanginn, að ég get ekki lofað að fara að ráðum lögmanna og láta kyrrt liggja ef ég rekst á hann á förnum vegi. Ef svo ólíklega vill til að hann sé að lesa þetta, þá vil ég hvetja hann til að fara niður á lögreglustöð við Hverfisgötu og kæra þetta sem hótun. Þá myndi réttarkerfið sem verndaði hann svo samviskulega sjá til þess að allir fengju að vita hvaða mann hann hefur að geyma. Druslugangan leggur af stað frá Hallgrímskirkju klukkan 14 á laugardaginn. Ég mæti með kærustunni minni en geng fyrir ykkur öll. Sjáumst. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Atli Fannar Bjarkason Mest lesið Vantraust Flokks fólksins á Viðreisn Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Ómeðvituð vörn í orðræðu – þegar vald ver sjálft sig Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun 48 daga blekking: Loforð sem leiðir til lögbrota? Svanur Guðmundsson Skoðun Ertu nú alveg viss um að hafa læst hurðinni? Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald Skoðun Verið öll hjartanlega velkomin á Unglingalandsmót á Egilsstöðum Jónína Brynjólfsdóttir Skoðun Hverjir eiga Ísland? Jón Baldvin Hannibalsson Skoðun Úrsúla og öryggismálin - Stöndum gegn vígvæðingu Guttormur Þorsteinsson Skoðun Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson Skoðun
Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald Skoðun
Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun
Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson Skoðun
Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald Skoðun
Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun
Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson Skoðun