Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri Fjarðarbyggðar, segir tökumenn þáttanna setja svip sinn á bæinn á jákvæðan hátt.
„Bæði myndi ég telja að flestir hafi gaman að þessu, svo lengi sem þetta gengur stórslysalaust fyrir sig, og þetta eru vissulega uppgrip hér í bæjarfélaginu á meðan þessu stendur,“ segir Páll Björgvin.
„Þetta er svolítið eins og vertíð þegar þeir koma. Það er margt sem þeir þurfa, þjónusta ýmsa aðila. Smiða og iðnaðarmanna og svona, svo þurfa þeir gistirými.“
Tökurnar eru mjög umfangsmiklar og munu bæjarbúar finna fyrir ýmis konar breytingum á meðan þeim stendur. Til að mynda verður götum í bænum lokað tímabundið á nokkrum stöðum og íbúar voru beðnir um að slökkva á þeim jólaseríum sem enn eru uppi í gærkvöldi.
Drungaleg stikla fyrir fyrstu þáttaröð þáttanna.
Að sögn Páls er mikið um snjó á svæðinu nú og því mun sennilega ekki þurfa að flytja inn gervisnjó, líkt og gert var fyrir tökur á fyrstu þáttaröðinni í fyrra.
Nokkrar stórstjörnur að utan koma fram í þáttunum. Þeirra á meðal er Hollywood-leikarinn Dennis Quaid, sem væntanlegur er til landsins. Gråbøl er sem fyrr segir þegar mætt austur en Páll segist ekki sjálfur hafa rekist á þekkta leikara við tökur.
„Ég er svosem ekkert sérstaklega að fylgjast með því heldur,“ segir hann. „Ég fylgist frekar með því hvaða áhrif þetta hefur á bæjarbraginn og slíkt. Ég stend vaktina þar.“