Þróttarar semja við stóran og sterkan markvörð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. febrúar 2016 19:23 Trausti Sigurbjörnsson fær samkeppni um markmannsstöðuna. Vísir/Ernir
Markvörðurinn Arnar Darri Pétursson hefur gert tveggja ára samning við nýliða Þróttar og mun því spila með liðinu í Pepsi-deild karla í sumar. Arnar Darri Pétursson kemur til Þróttar frá Stjörnunni en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá framkvæmdarstjóra Þróttar í kvöld. Arnar Darri, sem er 24 ára, er uppalinn hjá Stjörnunni en lék eitt tímabil með Víkingi Ólafsvík. Hann hefur einnig spilað í Danmörku og Noregi. „Arnar Darri er stór, sterkur og öflugur markvörður, sem getur átt langan og farsælan feril framundan í knattspyrnu, ef hann heldur rétt á spöðunum," segir í fréttatilkynningu Þróttara. „Með tilkomu Arnars Darra fá Trausti Sigurbjörnsson og Sindri Geirsson verðuga samkeppni um markvarðarstöðuna og þannig vil ég hafa hlutina, að tveir til þrír leikmenn keppi um allar stöður í byrjunarliðinu,“ segir Gregg Ryder, þjálfari Þróttar. „Þróttur kemur til leiks í efstu deild næsta sumar með bráðungan og efnilegan leikmannahóp. Liðið er að styrkja sig mikið frá síðasta ári og þjálfarateymið lítur á mig sem mikilvægan þátt í því ferli. Ég ætla að standa undir því trausti og hlakka til að taka virkan þátt í uppbyggingu fótboltans í Laugardal á næstu árum. Hérna í dalnum er hjartað í Reykjavík og það er heiður að tilheyra þessu félagi,“ segir Arnar Darri Pétursson, nýjasti leikmaður Þróttar, í fréttatilkynningu félagsins.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari 2024 Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Enski boltinn Fleiri fréttir „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ „Það hlaut að koma að því“ Uppgjörið: KA bikarmeistari 2024 Selfoss og KFA mætast í úrslitum „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik „Ætlum að taka bikarinn norður, það er bara staðan“ „Held að þetta verði mjög erfiður leikur“ Seinna spjaldið var ekki viljandi: „Er bara pirraður og missi hausinn“ Uppgjörið: Afturelding - Fjölnir 3-1 | Brenndu víti en tóku tveggja marka forystu Húbba Búbba kippt af dagskrá: „Það eina sem ég spila í Víkinni er fótbolti“ Eftirsjá Gary Martin: „Mín skoðun, fólk mun ekki vera sammála henni“ Utan vallar: Total-fótboltamaðurinn sem rétti Blikakúrsinn „Ég á Íslandi líf mitt að þakka“ Stúkan: „Sama hvað hann gerir ekki gefa honum gult spjald“ Keflavík í góðri stöðu „Mér finnst að allar þessar krúsídúllur eigi að bíða“ Þóra vonar að Tinna finni sér annað lið: „Kæmi mér á óvart ef það yrði ekki slegist um hana“ Flestir mæta á heimaleiki Blika Sjáðu heimsókn Nabblans á Meistaravelli Svona raðast leikirnir í Bestu deild karla Björn Daníel brattur: „Ætli þetta sé ekki hrörnun vöðvanna sökum aldurs?“ Sjáðu mörkin úr stórsigrum Vals og Víkings Rifjuðu upp þegar Gummi spurði strákana eftir tvær umferðir hvort KR gæti orðið meistari Lárus Orri ekki enn búinn að fyrirgefa Graham Potter: „Hann var svolítið linur“ Rúnar Páll: Fáránlega mikið af mörkum á okkur sem boðar ekki gott Aron: Að það þurfi tæklingu til þess að kveikja á liðinu finnst mér lélegt Sjá meira