Viðar fagnaði fyrsta markinu eins og það væri hans eigið. Mikið vafaatriði var hver hefði síðastur snert boltann, kannski Viðar, kannski Ívar Örn og kannski Víkingurinn Oliver Ekroth. Það skiptir hann ekki öllu máli.
„Mér finnst ég snerta hann þarna, ég man ekki alveg eftir þessu atviki, ég og Víkingurinn [Oliver Ekroth] förum þarna saman í hann. Skiptir svosem engu máli hver skorar. Ég eigna mér vanalega ekki mörk nema mér líði eins og ég hafi skorað, verð bara að sjá þetta aftur.“
Eftir erfiða byrjun á tímabilinu hefur KA heldur betur bætt úr sínum málum. Staðið sig stórvel í síðustu deildarleikjum og sömuleiðis í dag.
„Það eiga allir hrós skilið hjá KA. Stjórn, þjálfarar og leikmenn. Viðsnúningurinn var ekki þannig að við urðum ágætir, við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir. Þetta er mikið boost fyrir klúbbinn og bæinn.“
Viðari var þá bent vingjarnlega á að gleyma ekki stuðningsmönnunum fyrir aftan sig, sem áttu sannarlega mikinn þátt í sigrinum.
„Geggjaðir. Um leið og ég labbaði inn á völlinn varð ég sigurviss. Frá fyrstu mínútu fannst mér þetta aldrei í hættu,“ sagði Viðar að lokum og stökk svo til í fagnaðarlætin með stuðningsmönnum.
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.