„Ég er djúpt snortinn og Abel er orðlaus“ Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. febrúar 2016 13:34 Abel Dhaira í leik með ÍBV. Vísir
Óskar Örn Ólafsson, formaður knattspyrnudeildar ÍBV, segist ekki hafa átt við jafn sterkum viðbrögðum og hafa verið við söfnun Vodafone og ÍBV fyrir Abel Dhaira, markvörð ÍBV. Abel greindist með krabbamein í kviðarholi seint á síðasta ári og gekkst undir aðgerð vegna þessa á aðfangadag, 24. desember. Meinið náði þó að dreifa sér og á Abel erfiða baráttu fram undan. „Maður er djúpt snortinn,“ sagði Óskar Örn spurður um þau sterku viðbrögð sem hafa verið við söfnuninni. Fjölmörg knattspyrnulið hafa stigið fram og gefið sektarsjóðinn sinn í söfnunina, svo sem Stjarnan, Grindavík, Fram og Dalvík/Reynir. „Sjálfur á Abel ekki orð yfir þessu. Hann er afar þakklátur eins og lesa mátti á Facebook-síðunni hans um daginn.“Glory be to Almighty God . I would love to thank everyone from the bottom of my heart for the amizing Love , your...Posted by Dhaira Abel on Friday, February 12, 2016Óskar Örn segir að óháður aðili hafi verið kallaður til sem hefur umsjón með söfnuninni en miðað við stöðuna á söfnunarreikningnum hafa viðbrögðin verið sterk. Þá á eftir að koma til sá peningur sem safnast í símasöfnun Vodafone. Hann segir að það hafi aldrei komið neitt annað til greina eftir að Abel veiktist að fá hann til landsins. „Við fréttum af þessu 24. desember og við vildum fá hann heim eins fljótt og hægt var. Enda er hann okkar leikmaður og samningsbundinn ÍBV. Það var aldrei neitt annað í stöðunni.“ Óskar Örn segir að líðan Abel sé góð eftir atvikum. „Í morgun var hann í fræðslu fyrir lyfjameðferðina sem hefst á morgun. Þetta er allt eftir áætlun. Þetta verður erfið barátta en við ætlum að gera allt það sem við getum til að vinna hana.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Katrín Jakobs komin í FRÍ Sport Uppgjörið: Ísland - Portúgal 32-24| Ísland er á leiðinni á EM Handbolti Segir svindl að karfa Kára standi: „Ég upplifi þetta sem algjöra þvælu“ Körfubolti KR - Keflavík 3-2 | Alexander Rafn fullkomnaði endurkomu KR-liðsins Íslenski boltinn Rekinn án skýringa og ætlar í mál Handbolti Uppgjörið: ÍBV - FH 1-1 | Tryggði stig í fyrsta leik Íslenski boltinn Í slæmum málum fyrir að hrópa á McIlroy: „Færðu mér son minn aftur“ Golf Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Enski boltinn Sjáðu lygilega körfu Kára sem fékk bara 0,4 sekúndur Körfubolti Mannleg mistök innifalin og karfan góð og gild Körfubolti Fleiri fréttir Leik lokið: Valur - Þór Ak. 1-2| Nýliðarnir sóttu þrjú stig á Hlíðarenda KR - Keflavík 3-2 | Alexander Rafn fullkomnaði endurkomu KR-liðsins Fram - ÍA | Standast Skagamenn væntingarnar? KA - Stjarnan | Bæði lið mæta til leiks með nýjar kanónur Uppgjörið: ÍBV - FH 1-1 | Tryggði stig í fyrsta leik „Deildin aldrei verið sterkari en í ár“ Bikarmeistararnir áfram eftir danskt sigurmark í lokin „Ekki gott fyrir hin liðin“ „Verður þetta ekki bara geðveiki?“ Segir að Ekroth verði að gera betur Víkingar áttu að fá víti: „Þetta er hendi, það er bara klárt“ Sjáðu fyrstu mörk tímabilsins í Bestu deildinni Uppgjörið:Víkingur Reykjavík - Breiðablik 1-1| Besta deildin opnar með stórmeistarajafntefli Oliver sagður á leið til Keflavíkur „Alls ekki áhyggjuefni“ Fram og KR eiga léttustu byrjunina „Eitthvað sem gerist í hausnum á mönnum þegar þeir eru að verja titil“ Gylfi Þór klár í að byrja gegn Breiðabliki í kvöld Besta-spáin 2026: Á ekki að geta klikkað Fantasy-deild í loftið: „Eins og Kylie Jenner bjóði þér á date og þú neitir því“ „Algjörlega nauðsynlegt að fá framherja“ Sjáðu upphitunarþátt Stúkunnar í heild Besta-spáin 2026: Þurfa að svara fyrir sig Gylfi missir af upphafsleiknum Heimir Guðjóns mætir FH í bikarnum og KR fer í Garðabæinn Tók málin í sínar eigin hendur: „Svía fíflið þitt“ „Þetta gefur okkur ekkert forskot“ „Vona að þeir haldi í sín gildi og verði svolítið hugrakkir“ Víkingar bjóða börnum undir sextán ára frítt á Blikaleikinn Besta-spáin 2026: Óþreyja í Garðabænum Sjá meira