Vikander hlaut verðlaun sem besta leikkona í aukahlutverki fyrir hlutverk sitt í The Danish Girl þar sem sem hún fór með hlutverk Gerda Wegener.
Myndin fjallar um Lili Elbe sem var ein fyrsta manneskjan til að gangast undir kynleiðréttingu. Í myndinni er sögð breytingarsaga Elbe, sem Óskarsverðlaunahafi síðasta árs Eddie Redmayne leikur, og samband hennar við eiginkonuna Gerda.
Hún kom fyrst fram á leiksviði í söngleiknum Kristina från Duvemåla sem sýndur var í Gautaborgaróperunni, þá sjö ára gömul. Hún flutti að heiman fimmtán ára þegar hún hóf nám við Konunglega ballettskólann í Stokkhólmi.
Í viðtali við bandaríska tímaritið Vouge segir hún að dagarnir hafi þá byrjað klukkan sex á morgnana og verið búnir klukkan tíu að kvöldi.
Flestir hafi nemendurnir fengið fína einkunn, en hún segir bellettinn hafa snúist um að ná fullkomnun. „Ef þú varst ekki fullkominn þá var það líkt og heimsendir. Ég upplifði mikið stress á þessum tíma. Ég var hjá sálfræðingi en sagði ekki foreldrum mínum frá því.“
Fyrst vakti hún fyrst athygli nítján ára gömul þegar hún fór með hlutverk hinnar alvörugefnu „Jossan“ í sjónvarpsþáttaröðinni Andra Avenyn sem sýnd var í sænska ríkissjónvarpinu árið 2007.
Á þeim tíma ferðaðist hún milli Gautaborgar, þar sem þættirnir voru teknir upp, og Stokkhólms þar hún var enn við nám.
„Það voru margir sem vildu hitta hana. Til að byrja með las hún öll handrit sem henni bárust og þótti þau öll vera spennandi. Mér fannst mörg þeirra ekki vera með nægilega góða sýn á konur,“ hefur móðir Vikander sagt í samtali við SVT.
Á næstu misserum mun Vikander birtast í nýrri mynd um Jason Bourne ásamt Matt Damon, í myndinni Tulip Fever ásamt þeim Judi Dench og Jack O’Connell og The Light Between Oceans, þar sem hún leikur með kærasta sínum til tæpra tveggja ára, Michael Fassbender.