Íslenski boltinn

Keflavík skoraði fimm gegn Fram | Markalaust hjá Haukum og Grindavík

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Magnús Þórir skoraði eitt marka Keflavíkur í stórsigrinum á Fram.
Magnús Þórir skoraði eitt marka Keflavíkur í stórsigrinum á Fram. vísir/valli
Keflavík rúllaði yfir Fram í riðli 1 í Lengjubikarnum í fótbolta í kvöld.

Lokatölur urðu 0-5 en Framarar léku einum færri síðustu 75 mínútur leiksins.

Bojan Stefán Ljubicic skoraði tvö mörk af vítapunktinum fyrir Keflavík og þeir Guðjón Árni Antoníusson, Magnús Þórir Matthíasson og Frans Elvarsson sitt markið hver.

Lærisveinar Þorvaldar Örlygssonar hafa unnið þrjá af fjórum leikjum sínum í Lengjubikarnum og eru á toppi riðils 1 með 10 stig, tveimur stigum á undan Val.

Fram er hins vegar í 5. og næstneðsta sæti með tvö stig en strákarnir úr Safamýrinni bíða enn eftir sínum fyrsta sigri í Lengjubikarnum.

Ekkert mark var skorað þegar Haukar og Grindavík áttust við í riðli 3.

Haukar eru í 5. sæti riðilsins með þrjú stig eftir fimm leiki en Grindvíkingar eru í 6. og neðsta sæti með tvö stig eftir fjóra leiki.

Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar af Úrslit.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×