Íslenski boltinn

Ejub: Hef ekki fengið sekt í allan vetur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir
Íþróttadeild 365 spáir því að nýliðar Víkings frá Ólafsvík hafni í ellefta sæti Pepsi-deildar karla í sumar, eins og fjallað var um í Fréttablaðinu og Vísi í morgun.

Sjá einnig: Pepsi-spáin 2016: Víkingur Ó. hafnar í 11. sæti

Ejub Perusevic var af því tilefni gestur Akraborgarinnar á X-inu í dag og ræddi um undirbúningstímabilið sem er senn að baki og sumarið fram undan. Veturinn hefur að miklu leyti einkennst af því fyrir Ólafsvíkinga að hópur leikmanna hefur verið í Ólafsvík en annar hópur í Reykjavík.

„Mér finnst að ég er þokkalega duglegur að ferðast á milli. Án þess að fá sekt allan veturinn,“ sagði Ejub í léttum dúr.

Ólafsvíkingar voru afar sannfærandi í 1. deildinni síðastliðið sumar og koma reynslunni ríkari í Pepsi-deildinni árið 2013.

„Við byrjuðum á að vinna fyrstu leikina 1-0 og gerðum nokkur 0-0 jafntefli. En við fórum að spila sífellt betri fótbolta eftir því sem fór að líða á sumarið og enduðum sem eitt besta lið sem hefur spilað í 1. deild,“ sagði hann.

Sjá einnig: Þorsteinn Már: Ég mæti bara og spila fótbolta

Ejub segir að liðið geti lært eitthvað af því að hafa spilað í Pepsi-deildina árið 2013.

„Fyrir félag eins og Víking Ólafsvík er oft erfitt að breyta mörgu. Þetta er lítið félag á litlum stað. Það þarf mikið fjármagn til að reka félag í efstu tveimur deildunum og sérstaklega eru miklar kröfur gerðar til þess að æfingasvæðið sé gott.“

„Við reynum því að gera eins vel og við getum og ég held að það hafi tekist ágætlega.“

Víkingar hafa misst nokkuð af leikmönnum frá síðasta ári, sérstaklega í varnarlínunni. Þá segir Ejub að hann sakni þess að hafa Guðmund Reyni Gunnarsson í búningsklefanum.

„Góðir karakterar smita frá sér og hann var einn af þeim. Það er kominn leikmaður í hans stað, tvítugur Svíi, og á eftir að koma í ljós hvort að hann verði jafn góður leikmaður og Mummi var.“

Ejub fer um víðan völl í viðtalinu og ræðir leikmannahóp Víkinga ítarlega sem og sumarið sem er framundan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×