Íslenski boltinn

Ryder: Skil af hverju fólk hefur áhyggjur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Íþróttadeild 365 birti í morgun fyrstu spá sína fyrir komandi tímabil í Pepsi-deild karla en hún hófst með því að nýliðum Þróttar var spáð tólfta og neðsta sætinu.

Sjá einnig: Pepsi-spáin 2016: Þróttur hafnar í 12. sæti

Akraborgin á X-inu tekur þátt í ítarlegri umfjöllun okkar um Pepsi-deildina en í dag var Gregg Ryder, þjálfari Þróttar, gestur þáttarins í tilefni af spánni.

„Þetta var viðbúið hjá fjölmiðlum að spá okkur í tólfta sætið en það er ekki skoðun okkar í félaginu eða stuðningsmanna,“ sagði Ryder í viðtalinu sem má heyra í heild sinni hér efst í fréttinni.

Þróttur náði ekki að vinna leik á undirbúningstímabilinu og varð að gefa síðasta leik sinn í Lengjubikarnum, gegn Þór á Akureyri.

Sjá einnig: „Þróttarar náðu ekki í lið“

„Það er auðvitað alltaf betra að vinna leikina sína. Þess vegna erum við í fótbolta. En meira máli skiptir er að vinna þegar það hefur mikla þýðingu. Stundum þarf að fórna leikjum á undirbúningstímabilinu til þess,“ sagði þjálfarinn sem hefur ekki áhyggjur af því að gengi síðustu vikna hafi áhrif á andrúmsloftið í félaginu.

„Ég skil af hverju fólk heldur það. En við höfum spilað 5-6 æfingaleiki síðan við fórum í æfingaferðina til Spánar og töpuðum engum þeirra. Þeir leikir fá ekki jafn mikla athygli og mótsleikir og því margir sem taka ekki eftir því. En leikmenn eru fullir sjálfstrausts og mikil tilhlökkum hjá öllum í kringum félagið.“

Sjá einnig: Karl Brynjar: Loksins heimtað að við vinnum leiki

Ryder fer einnig vandlega yfir allar breytingar sem hafa verið gerðar á leikmannahópi Þróttar í vetur en margir þeirra eru leikmenn sem hafa ekki spilað hér á landi áður. En liðið missti Viktor Jónsson, sem var lánsmaður frá Víkingi, aftur í Fossvoginn og fékk Emil Atlason í hans stað.

„Framherjar eru afar mismunandi og Emil hefur verið frábær. Hann hefur skorað fjögur mörk í síðustu tveimur leikjum okkar. Hann hefur mikið sjálfstraust en nokkuð óreyndur þar sem hann hefur í raun aldrei fengið almennilegt tækifæri til að sanna sig,“ sagði Ryder sem fór um víðan völl í viðtalinu hér efst í fréttinni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×