Íslenski boltinn

Sjáðu mörkin sem Pedersen gerði fyrir Fjölni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fjölnir er með fullt hús í Pepsi-deild karla í fótbolta eftir 2-0 sigur á ÍBV í Grafarvoginum í dag. Fjölnir er nú búið að vinna báða leiki sína í mótinu en Eyjamenn eru með þrjú stig.

Martin Lund Pedersen skoraði bæði mörk Fjölnis í seinni hálfleik með fallegu einstaklingsframtaki en Grafarvogsliðið verðskuldaði sigurinn gegn máttlitlum Eyjamönnum.

Hér að ofan má sjá mörkin bæði sem Pedersen skoraði fyrir Fjölnismenn í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×