Ætluðu að æfa sig á móti Cristiano Ronaldo en fá ekki Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. júní 2016 11:45 Cristiano Ronaldo og Gareth Bale. Vísir/Getty
Englendingar mæta Portúgal í vináttulandsleik á Wembley-leikvanginum í kvöld en þetta er síðasti leikur enska landsliðsins fyrir Evrópumótið í Frakklandi sem hefst í næstu viku. Roy Hodgson, þjálfari enska landsliðsins, talaði um það á blaðamannafundi fyrir leikinn að ætlunin hafi verið að nota þennan leik við Portúgal sem æfingu til að glíma við Gareth Bale, leikmann Wales. Englendingar eru í riðli með Wales á Evrópumótinu í Frakklandi en fyrsti leikur enska liðsins á EM er þó á móti Rússlandi eftir níu daga. Enska þjálfarateymið bjóst við því að Cristiano Ronaldo yrði með Portúgölum í leiknum en hann fékk leyfi frá portúgalska sambandinu á meðan hann væri að jafna sig eftir tímabilið. Cristiano Ronaldo vann Meistaradeildina með Real Madrid á laugardaginn var en hann hefur verið að glíma við meiðsli og var ólíkur sjálfum sér í úrslitaleiknum þó að hann hafi á endanum tryggt Real titilinn með því að skora úr síðustu spyrnunni í vítaspyrnukeppninni. „Við vorum að hugsa um Gareth Bale," sagði Roy Hodgson þegar hann var spurður um ástæður þess að Englendingar völdu Portúgal sem lokamótherja sinn fyrir Evrópumótið. Portúgalska landsliðið spilar sinn fyrsta leik á Evrópumótinu á móti Íslandi í Saint-Étienne 14. júní næstkomandi en leikurinn á móti Englandi verður þó ekki generalprufan fyrir mótið. Portúgal spilar lokaundirbúningsleik sinn á móti Eistlandi á miðvikudaginn kemur en tveimur dögum eftir að íslenska landsliðið spilar sinn síðasta undirbúningsleik á móti Liechtenstein.
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Fleiri fréttir Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Sjá meira