Veiði

32 laxar komu á land fyrsta dag í Langá

Karl Lúðvíksson skrifar
Vífill Oddsson með 90 sm hæng úr Langá í gær
Vífill Oddsson með 90 sm hæng úr Langá í gær Mynd: Þór Sigfússon
Langá á Mýrum opnaði fyrir veiði í gær og það er óhætt að segja að dagurinn hafi komið vel á óvart.

Fyrir það fyrsta hefur Langá verið þekkt sem síðsumarsá en það er eitthvað allt annað upp á teningnum núna.  Það hafa tæplega 600 laxar farið í gegnum laxateljarann við Skugga og 10 laxar eru komnir í gegnum teljarann uppá Fjall.  Staðan við Skugga hefur aldrei áður verið svona góð svo það verður mjög spennandi að sjá hverju fram vindur næstu 10-12 daga og sjá þá hvort hinar dæmigerðu smálaxagöngur verði jafn góðar og vonir standa til.

Það er lax um alla á og sem dæmi þá veiddist lax í Hornhyl sem er ekki langt frá svæðinu sem er nefnt Fjallið og er efsta svæði Langár.  Það veiddist lax í Kistu, Hreimsáskvörn og svo sáust laxar víðar.  Stærsti laxinn er 90 sm hængur úr Breiðunni en að auki hafa veiðimenn sett í nokkra rígvæna sem hafa allir slitið sig lausa.  Veiðin í Langá var með besta móti í fyrra en hún var ekki nálægt því í sama ham og hún er núna.






×