Stóra myndin Frosti Logason skrifar 14. júlí 2016 07:00 Þegar stjörnufræðingarnir Galíleó og Kópernikus sannfærðust um sannleiksgildi sólmiðjukenningarinnar voru ekki margir sem tóku þá alvarlega. Nú á dögum eigum við einnig marga andans menn sem fávísan lýðinn skortir vitsmuni til þess að skilja. Sumir þessara framsæknu hugsuða hafa til dæmis reynt að benda okkur á að í raun séu það alþjóðleg lyfjafyrirtæki sem framleiði sjúkdóma. Þau haldi líka aftur af þróun læknavísinda til þess að almenningur nái aldrei fullri heilsu. Öðruvísi geta þau ekki lengur grætt á því að selja okkur lyf. Við lokum augunum fyrir augljósum staðreyndum eins og þeirri að það sé fámennur hópur zíonískra frímúrara sem ákveður atburðarás heimsmála. Það gera þeir á árlegum fundi Bilderberg-samtakanna og almenningur hefur ekkert um örlög sín að segja. Menn hafa reynt að opna augu almennings fyrir því hvernig stjórnvöld stýra hugsunum okkar með eitrun vatnsbóla. Hvernig tunglendingarnar voru vel plottað leikrit og ljósmyndirnar þaðan ekki teknar í hundruð þúsund kílmetra fjarlægð frá jörðu heldur í myndveri í Hollywood. Bent hefur verið á að efsta lag þjóðfélagsins – þjóðhöfðingjar og leiðtogar – séu í raun og veru geimverur. Eðlukennd skriðdýr sem dulbúa sig sem manneskjur til þess að drottna yfir mannkyninu. Þið haldið þó ekki að tilviljun ein ráði því að merki Framsóknarflokksins sé eðlugrænt á lit? En sorglegast af öllu þessu er blinda fólks á hinn sjálfgefna sannleika um 11. september. Auðvitað var það heimatilbúin árás fyrirskipuð af ríkisstjórn George W Bush. Kynnið ykkur þetta bara. Þetta er allt á Youtube.Þessi grein birtist upphaflega í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Frosti Logason Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson Skoðun