Emil: Sem betur fer datt boltinn á hausinn á mér Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 15. ágúst 2016 20:53 Emil Pálsson í leik með FH visir/marinó
Emil Pálsson tryggði FH 1-0 sigur á Fjölni í kvöld í 15. umferð Pepsi-deildar karla í fótbolta með marki rétt eftir að hann kom inná sem varamaður. „Ég held það sé ekki hægt að eiga betri innkomu heldur en þetta. Koma inn og skora með fyrstu snertingu. Það verður ekki betra,“ sagði Emil strax eftir leik. „Ég er yfirleitt með mitt svæði í hornum og ég fór bara í það og sem betur fer datt boltinn á hausinn á mér og ég náði að setja hann í netið.“ Emil lék um tíma á síðustu leiktíð með Fjölni á láni frá FH og kann hann einkar vel við sig á Extra-vellinum í Grafarvogi. „Mér líður vel í Grafarvogi. Það var mjög gott að koma hingað til baka þó ég hefði viljað spila meira. En ég er ánægður með að hafa náð að setja mark mitt á leikinn.“ Emil var valinn leikmaður síðustu leiktíðar en varð að sætta sig við að byrja leikinn í dag á bekknum. Hann meiddist lítillega í síðasta leik gegn KR en hann sagði það ekki hafa haft neitt með það að gera. „Ég get ekki sagt það. Við höfum verið upp og niður og hann (Heimir Guðjónsson þjálfari) hefur verið að hræra í liðinu og ég tek bara þeirri uppstillingu sem hann ákveður. Ég reyni bara að koma sterkur af bekknum og gera eitthvað,“ sagði Emil sem stóð við þau orð í leiknum í kvöld.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Sjá meira