Ekki fyrir viðkvæma: Kind skelfilega illa leikin eftir dýrbít í Lundarreykjadal Jakob Bjarnar skrifar 8. september 2016 09:15 Skæður dýrbítur leikur nú lausum hala í Borgarbyggð. Hann drap kind í vikunni og er hún illa leikin. visir/vilhelm
Birgir Hauksson refaskytta og minkabani með meiru birti skelfilegar myndir á Facebook. Þar getur að líta dauða kind sem búið er að éta framan af snoppunni. Birgir segir aðspurður algerlega viss um að þetta sé eftir ref. Birgir fékk myndirnar sendar í gærmorgun en þær voru teknar við efsta bæ í Lundarreykjadal. Kindin fannst um morguninn og hefur verið drepin þá um nóttina.Kindin er skelfilega leikin eftir dýrbítinn, en hann getur verið lengi að murka lífið úr kindunum þegar hann byrjar.„Þetta var rétt heima undir bæ. Fannst vegna þess hversu stutt undan þetta er. Þannig að sami rebbi gæti átt mörg svipuð fórnarlömb frá sem enginn veit af enn. Það kemur í ljós í göngum sem eru um helgina,“ segir Birgir.Dæmigerð vinnubrögð rebba Birgir segir engan möguleika vera á því að þarna hafi verið hundur á ferð. „Þeir fara aftan í kindur og rífa og tæta þar. Þetta eru aftur á móti dæmigerð vinnubrögð rebba. Hann fer oftast í snoppuna á kindum og rífur þar og tætir. Hann getur verið lengi að murka lífið úr kindum og stundum tekst þeim það alls ekki. En kindin er auðvitað stórskemmd á eftir. Sumir fara víst aftan í kindur og rífa rassgatið út, en það er sjaldgæfara en hitt, ég hef til dæmis aldrei séð svoleiðis leikna kind,“ segir Birgir sem á að baki áratuga reynslu í að eiga við varg.Það er ekki að ástæðulausu sem refurinn er svo hataður af bændum og þeim sem þekkja til refsins þegar hann er sem illskeyttastur.Birgir gerþekkir þetta tiltekna svæði og hann segir þetta árvisst vandamál í Borgarbyggð. „Þetta er á því svæði þar sem mér er skammtaður kvóti upp á 20 stykki árlega af Borgarbyggð. Já, það er fullt af tófu þarna eins og á flestum stöðum þar sem lítið er veitt.“Ekki að ástæðulausu sem rebbi er svo hataðurFjölmargir hafa ríka samúð með refnum, tala um hann sem fyrsta landnemann og skilja ekki það hvers vegna hann er hundeltur. En, þarna er líkast til skýringin á því að bændur og þeir sem til þekkja hatast við skolla? „Nákvæmlega. Þetta gerðist síðast árið 2014, þá hjá þessum sömu bændum en þá brást Borgarbyggð óvænt skjótt við og setti fé til höfuðs nokkrum rebbum. Það tókst þá að uppræta bítinn. Spurning hvernig tekst til núna og hvað sveitarfélagið hyggst gera.“Birgir segir að það komi í hans hlut að liggja fyrir dýrbítnum, en hann er þaulvön refaskytta. Hér má sjá hann með fallinn ref.Birgir segir vissar skyldur í þessu sem sveitarfélögin verði að axla, til dæmis að leita á öllum þekktum grenjum árlega, en það hafi samt ekki verið gert síðan 2008 á þessum slóðum. Spurður hvort Birgir ætli á eftir þessum skæða dýrbít segir hann það svo vera.Ætlar að freista þess að fella dýrbítinn „Það lendir á mér að reyna að liggja fyrir honum, já. Ég er bara varla nógu sprækur í svona verkefni lengur en reyni samt líklega að beita allri minni herkænsku og reynslu sem er allnokkur og svo verður að koma í ljós hvernig tekst til,“ spaugar Birgir. Þó honum sé ekki hlátur í huga. „Verst bara að það stendur ekki utan á þeim hver sé sökudólgurinn.“Nei, einmitt. Það er þannig að ekki gerast allir rebbar dýrbítar?„Nei, þetta er nú sem betur fer ekki mjög algengt. En hefur samt verið að aukast síðustu ár, það er þá bara í takti við stærri tófustofn. Ég var að veiða í Grímsá í fyrradag og á leiðinni í bæinn sá ég fjórar tófur sem voru hér og þar á leiðinni frá Þingvöllum. Og sú síðasta var við Leirvogsá. Þetta var í myrkrinu í gærkvöldi og þeim brá fyrir í bílljósunum á veginum. Mér fannst þetta dálítið mikið.“Þessi frétt birtist fyrst á Gripdeild sem er samstarfsvefur Vísis um veiðiumfjöllun.
Stangveiði Mest lesið Flottasta RISE hátíðin hingað til Veiði Flekkudalsá til SVFR Veiði Koma fyrstu laxarnir á land 5. júní? Veiði Fyrsta hollið í Blöndu með 23 laxa Veiði Bubbi lét húðflúra laxaflugu á handlegginn Veiði Sumarhátíð SVFR haldin næsta laugardag Veiði Allar lokatölur komnar úr laxveiðiánum Veiði Mokveiði í Frostastaðavatni Veiði Miðfjarðará aflahæst sjálfbæru ánna Veiði 243 laxar komnir á land í Selá Veiði