Ráðlögð rjúpnaveiði í haust 40.000 fuglar Karl Lúðvíksson skrifar 7. september 2016 15:08 Mynd: www.ni.is
Rjúpnaskyttur telja sjálfsagt niður dagana í að veiðar hefjist en Náttúrufræði-stofnun Íslands var að senda frá sér tillögur um rjúpnaveiðar á komandi hausti. Rjúpnastofnin hefur verið í lægð undanfarin ár og á þessu ári er reiknuð stærð stofnsins um 56.000 fuglum minni en hún var á síðasta ári. Stærð veiðistofnsins er áætlaður um 453.000 fuglar en var 620.000 fuglar árið 2015. Skyttur sem gengu á fjöll í fyrra fundu vel fyrir þessu en það voru margir sem náðu ekki fugli þrátt fyrir að fara mikið. Það voru engu að síður skyttur sem áttu ágæta daga en þeir voru í heildina ekki margir. Áfram verður biðlað til rjúpnaskytta að gæta hófs í veiðum. Hér fyrir neðan má lesa frétt frá stofnuninni."Náttúrufræðistofnun Íslands hefur metið veiðiþol rjúpnastofnsins 2016 og sendi niðurstöðurnar til umhverfis- og auðlindaráðherra þann 6. september síðastliðinn. Stofnunin leggur til að ráðlögð rjúpnaveiði í haust verði 40 þúsund fuglar, en hún var 54 þúsund fuglar á síðasta ári. Stofnunin leggur mikla áherslu á að hvergi verði slakað á í þeirra viðleitni að draga sem mest úr heildarafföllum rjúpunnar.Viðkoma rjúpunnar var metin með talningum í tveimur landshlutum síðsumars. Hlutfall unga reyndist vera 76% á Norðausturlandi og 77% á Suðvesturlandi. Rjúpnastofninn er í lágmarki um vestanvert landið en í niðursveiflu um landið austanvert. Reiknuð heildarstærð varpstofns rjúpu vorið 2016 var metin 132 þúsund fuglar, en var 187 þúsund fuglar 2015. Framreiknuð stærð veiðistofns 2016 er 453 þúsund fuglar miðað við 620 þúsund fugla 2015. Þessir útreikningar byggja á gögnum fyrir Norðausturland og ofmeta stærð stofnsins nær örugglega.Miðað við niðurstöður rjúpnatalninga í Hrísey og á Kvískerjum, sem ná allt aftur til ársins 1963, er árið 2016 á bilinu tuttugasta til þrítugasta lakasta miðað við 100 ár. Rjúpnafjöldinn á þessu ári er vel undir meðallagi miðað við síðustu 50 ár.Umhverfis- og auðlindaráðherra ákvað haustið 2013 að rjúpnaveiðitíminn yrði 12 dagar næstu þrjú ár, nema eitthvað óvænt kæmi upp á. Niðurstöður Náttúrufræðistofnunar sýna í sjálfu sér ekkert óvænt en stofninn er lítill. Stofnunin leggur til að fyrirkomulag veiða verði með óbreyttum hætti á þessu ári.Útreikningar Náttúrufræðistofnunar á ráðlagðri veiði upp á 40 þúsund fugla miðast við að áhrif veiða séu ekki önnur en þau að veiðiafföll bætast að fullu við náttúruleg afföll."
Mest lesið Flottasta RISE hátíðin hingað til Veiði Flekkudalsá til SVFR Veiði Koma fyrstu laxarnir á land 5. júní? Veiði Fyrsta hollið í Blöndu með 23 laxa Veiði Bubbi lét húðflúra laxaflugu á handlegginn Veiði Sumarhátíð SVFR haldin næsta laugardag Veiði Allar lokatölur komnar úr laxveiðiánum Veiði Mokveiði í Frostastaðavatni Veiði Miðfjarðará aflahæst sjálfbæru ánna Veiði 243 laxar komnir á land í Selá Veiði