Myndin kom út árið 1999 og segir frá Peter Gibbons en hann vinnur sem forritari hjá fyrirtækinu Initech. Hann er ákaflega óánægður í starfi enda er hann bara eitt tannhjól í klukkuverki kapítalismans þar sem persónan er bara númer og svo framvegis.
Þetta er undirstrikað rækilega með yfirmanninum Bill Lumbergh sem hefur með vinsældum Office Space orðið ákveðin táknmynd fyrir ömurlegan yfirmann og líklega ófáir skrifstofustarfsmenn um allan heim sem hafa hermt eftir raddbeitingu hans í frasanum hans „yeah, that’ll be greeeaaaat“.

Þetta veldur því að Peter verður ákaflega afslappaður – hann nær að losa af sér fjötra skrifstofulífsins og í frægu „montage“-atriði sjáum við Peter brjóta nánast allar reglur skrifstofunnar þar sem hann meðal annars verkar fisk á skrifborðinu sínu, leggur í stæðið hans Lumberghs og tekur niður skrifstofuskilrúmið sitt til að sitja fyrir framan glugga. Einn hápunktur myndarinnar er síðan þegar Peter og samstarfsmenn hans, Samir Nagheenanajar og Michael Bolton, rústa prentara sem hafði verið að ergja þá lengi.
Síðar nýtti Mike Judge reynslu sína af sprotafyrirtækjum í þættina Silicon Valley – þar eru mörg svipuð þemu í gangi og í Office Space og greinilegt að reynsla hans af skrifstofum og þeim kúltúr sem þar vill þrífst hefur brennt hann mikið.
Og reynsla Mike Judge snerti greinilega einhverjar taugar því að þrátt fyrir að Office Space hafi ekki gengið neitt sérstaklega vel þegar hún kom fyrst út í bíó – halaði inn tæpar 13 milljónir dollara á móti þeim 10 milljónum sem hún kostaði í framleiðslu – þá var henni mjög vel tekið af gagnrýnendum og hún seldist vel bæði á VHS og DVD.
Myndin varð sérstaklega vinsæl meðal starfsmanna í upplýsingatæknideildum og greinilegt að margir eiga sér sinn Bill Lumbergh og hafa háleita drauma um að feta í fótspor Peters – mæta með nýveiddan fisk á skrifstofuna, sofa út og leggja bölvaðan prentarann í rúst (jafnvel enn þann dag í dag – prentarar virðast ekki hafa batnað neitt síðan um miðjan tíunda áratuginn). Költmyndir eru enda myndir sem hafa einhvern neista í sér sem gerir þær þess virði að horfa á aftur og aftur – því ekki að kíkja aftur á Office Space á næstunni.
Stiklu úr myndinni má sjá hér að neðan.