Íslenski boltinn

Pepsi-mörkin: Svona opnuðu Víkingar Fylkisvörnina

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Víkingur R. og Fylkir gerðu 2-2 jafntefli í 20. umferð Pepsi-deildar karla á sunnudaginn.

Bæði mörk Víkinga komu eftir sóknir upp hægri kantinn. Vladimir Tufegdzic gerði það fyrra og Josip Fucek það síðara. Í báðum tilfellum var varnarleikur Fylkismanna ekki til útflutnings líkt og farið var yfir í Pepsi-mörkunum í gærkvöldi.

Tómas Joð Þorsteinsson, vinstri bakvörður Fylkis, átti erfiðan dag í Víkinni á sunnudaginn en félagar hans gerðu einnig sín mistök í aðdraganda marka Víkings.

Sonni Ragnar Nattested var ekki nógu vel staðsettur í fyrra marki Víkings að mati Hjartar Hjartarsonar og í öðru markinu hafði hann ýmislegt við varnarleik Andra Þórs Jónssonar að athuga.

Innslagið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir

Pepsi-mörkin: Ábyrgð þeirra er mikil

Athygli vakti að hvorki Damir Muminovic né Gísli Eyjólfsson voru í byrjunarliði Breiðabliks gegn ÍBV í 20. umferð Pepsi-deildar karla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×