Stjörnurnar í Garðabænum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. október 2016 06:00 Stjarnan endurheimti Íslandsmeistaratitilinn. vísir/eyþór
Eftir stutt stopp í Kópavoginum er Íslandsbikarinn kominn aftur í Garðabæinn. Stjarnan náði í mikilvægt stig gegn Breiðabliki í 16. umferð og eftir það voru Garðbæingar með örlögin í eigin höndum og þurftu bara að vinna KR og FH í síðustu tveimur umferðunum til að tryggja sér titilinn. Og það hafðist, Stjarnan kláraði sína leiki með stæl, vann KR 0-3 í næstsíðustu umferðinni og FH 4-0 í gær. „Þetta er alltaf jafn geggjað og ég er gríðarlega stolt af stelpunum eftir leikinn í dag,“ sagði Harpa Þorsteinsdóttir, markahæsti og besti leikmaður Pepsídeildarinnar 2016, í samtali við Fréttablaðið í gær. Hún lék ekki með Stjörnunni í síðustu tveimur leikjunum þar sem hún er barnshafandi eins og frægt er orðið. Harpa var þó búin að gera sitt en hún skoraði 20 mörk í fyrstu 16 leikjum tímabilsins.Margar hetjur Hetjurnar í Stjörnuliðinu eru fleiri. Hin tvítuga Berglind Hrund Jónasdóttir fyllti skarðið sem Sandra Sigurðardóttir skildi eftir sig í markinu með glæsibrag; fékk aðeins 10 mörk á sig í 17 leikjum og hélt marki sínu níu sinnum hreinu. Ólafur Þór Guðbjörnsson, þjálfari Stjörnunnar, segir að Berglind hafi sannað að hún var traustsins verð. „Berglind stóð sig vel í vorleikjunum og sýndi að hún ætlaði sér að taka stöðuna. Það var engin spurning að hún fengi traustið og hún stóð sig frábærlega í sumar,“ sagði Ólafur sem tókst að fylla fleiri skörð í liði Stjörnunnar en talsverðar breytingar urðu á liðinu í vetur. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir, Agla María Albertsdóttir, Donna Kay Henry og Katrín Ásbjörnsdóttir komu allar fyrir tímabilið og léttu undir með Hörpu í sóknarleiknum. Katrín var t.a.m. frábær í leiknum gegn FH þar sem hún skoraði tvö mörk og lagði hin tvö upp. Fyrirliðinn Ásgerður Stefanía Baldursdóttir lyfti Íslandsbikarnum í leikslok en þessi mikli sigurvegari hefur átt risastóran þátt í uppgangi Stjörnunnar á undanförnum árum og er hjartað í liði Garðbæinga. „Við settum okkur þetta markmið 13. september í fyrra, eftir að Breiðablik hafði tryggt sér titilinn. Karakterinn sem við sýndum á köflum í sumar hefur verið með ólíkindum. Ég er bara ótrúlega stolt og ég get varla lýst því hvernig er að vera fyrirliði í svona liði,“ sagði Ásgerður í leikslok í gær.Selfoss fór niður Það var einnig barist á hinum enda töflunnar í lokaumferðinni í gær. KR var í verstu stöðunni fyrir umferðina en tryggði sér áframhaldandi sæti í Pepsídeildinni með ævintýralegum 2-3 sigri á botnliði ÍA. Á sama tíma gerðu Fylkir og Selfoss markalaust jafntefli en það var hlutskipti síðarnefnda liðsins að fylgja Skagakonum niður í 1. deild. Þetta er mikið áfall fyrir Selfoss sem endaði í 3. sæti Pepsídeildarinnar í fyrra og komst í bikarúrslit 2014 og 2015. Þá gerðu ÍBV og Þór/KA 3-3 jafntefli í miklum markaleik og Valur vann 1-0 sigur á Breiðabliki. Þetta var fyrsta tap Blika í deildarleik frá 22. júlí 2014.
Pepsi Max-deild kvenna Tengdar fréttir Harpa fékk gullskóinn | Lacasse hirti bronsskóinn Harpa Þorsteinsdóttir varð langmarkahæst í Pepsi-deild kvenna með 20 mörk. 30. september 2016 18:12 Harpa: Er að upplifa allan tilfinningaskalann "Ég er fegin, þakklát og allt þarna á tilfinningaskalanum,“ segir Harpa Þorsteinsdóttir, leikmaður Stjörnunnar, eftir að liðið hafði tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í Pepsi-deild kvenna árið 2016. Liðið vann FH 4-0 á Samsung-vellinum í Garðabæ í kvöld. 30. september 2016 18:54 Ólafur: Það er búið að ganga mikið á og því er ég ótrúlega stoltur "Ég er mjög stoltur af stelpunum og þetta er búið að vera frábært tímabil hjá okkur,“ segir Ólafur Þór Guðbjörnsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir að liðið hafði tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í Pepsi-deild kvenna árið 2016. 30. september 2016 18:25 Umfjöllun og viðtöl: Fylkir - Selfoss 0-0 | Selfyssingar fóru niður Fylkir og Selfoss gerðu markalaust jafntefli í lokaumferð Pepsi-deildar kvenna í dag. Á sama tíma vann KR dramatískan 2-3 sigur á ÍA. 30. september 2016 18:45 KR bjargaði sér á ótrúlegan hátt | Selfoss féll Vann 3-2 sigur á ÍA eftir að hafa lent 2-0 undir. Selfoss féll eftir jafntefli í Árbænum. 30. september 2016 17:54 Titillinn aftur í Garðabæinn: Stjarnan Íslandsmeistari 2016 Stjarnan vann öruggan 4-0 sigur á FH í lokaumferð Pepsi-deildar kvenna í kvöld. 30. september 2016 17:45 Fyrsta tap Breiðabliks staðreynd | Úrslit dagsins Blikar töpuðu fyrsta leiknum sínum í sumar í lokaumferð Pepsi-deildar kvenna. 30. september 2016 17:56 Pepsi-mörk kvenna: Harpa best | Myndband Stjörnukonan Harpa Þorsteinsdóttir þarf að rýma til í verðlaunaskápnum heima hjá sér. 30. september 2016 22:10 Stjarnan Íslandsmeistari í fjórða sinn | Myndaveisla Stjarnan tryggði sér í dag fjórða Íslandsmeistaratitilinn á síðustu sex árum. 30. september 2016 20:51 Katrín: Þó einhver verði ólétt eða önnur slíti krossbönd, þá kemur alltaf einhver inn "Tilfinningin gæti ekki verið betri,“ segir Katrín Ásbjörnsdóttir, leikmaður Stjönunnar, eftir að liðið hafði tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í Pepsi-deild kvenna árið 2016. Liðið vann FH 4-0 á Samsung-vellinum í Garðabæ í kvöld. 30. september 2016 18:33 Ásgerður: Ótrúlega stolt að fá að vera fyrirliði í svona liði "Það er ótrúlega gott að vera komin með titilinn aftur hingað í Garðabæinn,“ segir Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, eftir að liðið hafði tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í Pepsi-deild kvenna árið 2016. 30. september 2016 18:47 Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Lokadagur heimsleikanna í CrossFit: Í hvaða sætum enda Íslendingarnir? Sport Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Svakaleg endurkoma Joshua í fyrsta bardaga hans eftir bílslysið Sport Haaland kyndir undir Haaland-æði á samfélagsmiðlum Fótbolti Óvæntasta stjarna HM fann sér nýtt félag Fótbolti Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Fram - FH | Komast gestirnir af fallsvæðinu? ÍA - Stjarnan | Jón Þór á heimaslóðum Kláraði Harvard og samdi við Blika Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Var strax sannfærð: „Bjóst eiginlega við að þetta myndi vera svona“ Uppgjörið: Fram - Grindavík/Njarðvík 0-3 | Í bikarúrslit í fyrsta sinn Skotarnir staðfesta að Víkingur hafi keypt íslensku landsliðskonuna Fyrsti sigur ÍR-inga síðan á Þjóðhátíðardeginum Æfir íslenskuna daglega í klefanum Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar „Virkilega sáttur við framlag leikmannanna“ „Bárum of mikla virðingu fyrir þeim“ Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum „Búin að slá út ansi öflug lið“ Taugarnar þandar í endurkomusigri Njarðvíkur Tap í fyrsta leik Söru Bjarkar fyrir Hauka síðan 2008 Uppgjörið: Þróttur - ÍBV 1-0 | Þróttarar í bikarúrslit Hetja Þróttar: „Ákvað að hoppa og vona það besta“ Elfar Árni tryggði Völsungum mikilvægan sigur á Mærudögum Afturelding kaupir Kristin Frey frá Val „Nýtt verkefni og nýr leikur“ Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Skoruðu fimm í Breiðholtinu og fóru upp í annað sætið Kaupa Conteh frá Stjörnunni „Ótrúlega spennandi sóknarmaður“ Spilaði á móti Þór um síðustu helgi og var síðan lánaður til Þórs Spilar gegnum meiðsli: „Verður örugglega svolítið vont“ Gegndrepa Jón Þór bíður sólarinnar „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Sjá meira
Harpa fékk gullskóinn | Lacasse hirti bronsskóinn Harpa Þorsteinsdóttir varð langmarkahæst í Pepsi-deild kvenna með 20 mörk. 30. september 2016 18:12
Harpa: Er að upplifa allan tilfinningaskalann "Ég er fegin, þakklát og allt þarna á tilfinningaskalanum,“ segir Harpa Þorsteinsdóttir, leikmaður Stjörnunnar, eftir að liðið hafði tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í Pepsi-deild kvenna árið 2016. Liðið vann FH 4-0 á Samsung-vellinum í Garðabæ í kvöld. 30. september 2016 18:54
Ólafur: Það er búið að ganga mikið á og því er ég ótrúlega stoltur "Ég er mjög stoltur af stelpunum og þetta er búið að vera frábært tímabil hjá okkur,“ segir Ólafur Þór Guðbjörnsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir að liðið hafði tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í Pepsi-deild kvenna árið 2016. 30. september 2016 18:25
Umfjöllun og viðtöl: Fylkir - Selfoss 0-0 | Selfyssingar fóru niður Fylkir og Selfoss gerðu markalaust jafntefli í lokaumferð Pepsi-deildar kvenna í dag. Á sama tíma vann KR dramatískan 2-3 sigur á ÍA. 30. september 2016 18:45
KR bjargaði sér á ótrúlegan hátt | Selfoss féll Vann 3-2 sigur á ÍA eftir að hafa lent 2-0 undir. Selfoss féll eftir jafntefli í Árbænum. 30. september 2016 17:54
Titillinn aftur í Garðabæinn: Stjarnan Íslandsmeistari 2016 Stjarnan vann öruggan 4-0 sigur á FH í lokaumferð Pepsi-deildar kvenna í kvöld. 30. september 2016 17:45
Fyrsta tap Breiðabliks staðreynd | Úrslit dagsins Blikar töpuðu fyrsta leiknum sínum í sumar í lokaumferð Pepsi-deildar kvenna. 30. september 2016 17:56
Pepsi-mörk kvenna: Harpa best | Myndband Stjörnukonan Harpa Þorsteinsdóttir þarf að rýma til í verðlaunaskápnum heima hjá sér. 30. september 2016 22:10
Stjarnan Íslandsmeistari í fjórða sinn | Myndaveisla Stjarnan tryggði sér í dag fjórða Íslandsmeistaratitilinn á síðustu sex árum. 30. september 2016 20:51
Katrín: Þó einhver verði ólétt eða önnur slíti krossbönd, þá kemur alltaf einhver inn "Tilfinningin gæti ekki verið betri,“ segir Katrín Ásbjörnsdóttir, leikmaður Stjönunnar, eftir að liðið hafði tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í Pepsi-deild kvenna árið 2016. Liðið vann FH 4-0 á Samsung-vellinum í Garðabæ í kvöld. 30. september 2016 18:33
Ásgerður: Ótrúlega stolt að fá að vera fyrirliði í svona liði "Það er ótrúlega gott að vera komin með titilinn aftur hingað í Garðabæinn,“ segir Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, eftir að liðið hafði tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í Pepsi-deild kvenna árið 2016. 30. september 2016 18:47